Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tekist á um örlög fjögurra ára telpu Örlög fjögurra ára norskrar telpu sem liggur í dauðadái eru nú bitbein lækna og ástvina hennar. Málið hefur vakið mikla athygli í Noregi, ekki síst eftir að Björgvinjarbiskup skarst í leikinn. 23.1.2006 20:25
Frumvarp um Ríkisútvarpið á Alþingi Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir frumvarpi um Ríkisútvarpið á Alþingi í dag. Stofnuninni verður breytt í hlutafélag, afnotagjöld lögð niður og tekin upp nefskattur. 23.1.2006 20:12
Bjórinnflytjendur reyna að lokka til sín 15 og 16 ára skólabörn Talsverð brögð eru að því að veitingastaðir og bjórinnflytjendur reyni að lokka til sín skólabörn allt niður í fimmtán, sextán ára. Skólarnir reyna að sporna við þessu en viðurlög við slíkum brotum eru léttvæg. 23.1.2006 19:49
Álverið í Straumsvík rúmlega tvöfaldað að stærð Álverið í Straumsvík verður meira en tvöfaldað að stærð á næstu fjórum árum og fjórar vatnsaflsvirkjanir byggðar í neðri Þjórsá og Tungnaá, samkvæmt áformum Alcan og Landsvirkjunar, sem kynnt voru í dag. Áður hafði Orkuveita Reykjavíkur samið um að útvega nærri helming nauðsynlegrar raforku vegna stækkunar í Straumsvík. 23.1.2006 19:45
Ríkisskattstjóri staðfestir tölur um aukna skattheimtu Indriði H. Þorláksson ríkisskattstjóri staðfestir að tölur Stefáns Ólafssonar prófessors um aukna skattheimtu séu réttar. Indriði segir að rýrnun persónuafsláttar leiði til meiri skattbyrði á lægri tekjur. Hann telur þó að stærsti áhrifavaldurinn í aukinni skattbyrði sé launaþróun og kaupmáttaraukning. 23.1.2006 19:40
Hamas-samtökunum spáð góðu gengi í þingkosningum Utankjörfundaratkvæðagreiðslu fyrir palestínsku þingkosningarnar lýkur í dag. Palestínumenn ganga síðan að kjörborðinu á miðvikudag. Skoðanakannanir benda til þess að Hamas-samtökin verði ráðandi afl í palestínskum stjórnmálum eftir kosningarnar og er þeim spáð 31% atkvæða. 23.1.2006 17:18
Leikskólakennarar óánægðir með launamálaráðstefnu Stjórn og samninganefnd Félags leikskólakennara lýsir yfir miklum vonbrigðum með niðurstöður launamálaráðstefnunnar sem séu í senn óljósar og gefi takmörkuð fyrirheit. 23.1.2006 17:11
Frumvarp til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða Samkvæmt nýju frumvarpi sjávarútvegsráðherra til breytinga á lögum um stjórn fiskveiða er lagt til að sett verði hámark á samanlagða krókaaflahlutdeild þannig að enginn hafi yfir meiru að ráða en 6% af krókaaflahlutdeild í þorski, 9% krókaaflahlutdeild í ýsu og 6% af heildarverðmæti krókaaflahlutdeildar. 23.1.2006 16:29
Alcan á Íslandi og Landsvirkjun ræða um raforkusamning Landsvirkjun og Alcan á Íslandi hafa samþykkt að taka upp einkaviðræður um raforkusamning fyrir stækkun álversins í Straumsvík. Stefnt er að því að þeim viðræðum ljúki fyrir lok þessa árs. 23.1.2006 16:12
Landsvirkjun leggur Norðlingaölduveitu til hliðar Landsvirkjun hefur ákveðið að hætta við undirbúning að Norðlingaölduveitu að svo stöddu. Landsvirkjun mun þess í stað einbeita sér að öðrum virkjunarkostum á Þjórsár- og Tungnaársvæðinu. Formaður Náttúruverndarsamtaka Íslands er ósáttur við að Landsvirkjun sé ekki tilbúin að hætta alfarið við framkvæmdirnar. 23.1.2006 15:25
Actavis eignast tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako Tyrkneska samheitalyfjafyrirtækið Fako er nú að fullu í eigu Actavis eftir kaup þess á 11 prósenta hlut í Fako fyrir rúmlega 1,2 milljarða króna. 23.1.2006 14:25
Lögreglan á Selfossi hefur afskipti af veitinga- og skemmtistöðum Lögreglan á Selfossi þurfti að hafa afskipti af fjórum veitinga- og skemmtistöðum um helgina vegna þess að þeir höfðu ekki tilskylin leyfi fyrir starfsemina. Um er að ræða vínveitinga- og skemmtanaleyfi en leyfin voru útrunnin eða þau höfðu ekki verið fengin. 23.1.2006 14:05
Um 280 manns urðu undir þegar bygging hrundi til grunna Að minnsta kosti tíu manns fórust og um fimmtíu manns voru fluttir á sjúkrahús þegar fimm hæða bygging hrundi til grunna í Nairóbí, höfuðborg Kenía í dag. Um 280 manns voru í húsinu þegar það hrundi en fjölmargir reyndu að koma fólkinu til bjargar og grafa það upp úr rústunum. 23.1.2006 13:30
Ljóslausir vagnar skapa hættu fyrir ökumenn Lögreglumenn á Hvolsvelli hafa undanfarnar vikur haft nokkur afskipti af ökumönnum dráttarvéla með tengivagna. Margir þessa vagna eru óskráðir og ljósabúnaður þeirra er lítill sem enginn. Vagnarnir sjást því illa í miklu myrkri og geta skapað nokkra hættu fyrir vegfarendur ef þeir sjá ekki vagnana í tæka tíð. 23.1.2006 12:45
Anibal Carvaco Silva næsti forseti Portúgals Hægrimaðurinn Anibal Carvaco Silva verður næsti forseti Portúgals en kosningar voru haldnar í landinu í gær. Engu mátti muna að til annarrar umferðar hefði komið. Cavaco Silva fékk 50,6% atkvæða í kosningunum í gær og munaði því aðeins hálfu prósentustigi að kjósa þyrfti aftur á milli hans og ljóðskáldsins Manuel Alegre, sem fékk rúman fimmtung atkvæða. 23.1.2006 12:30
Gasflutningar á milli Georgíu og Rússlands að komast í lag Gasflutningar á milli Georgíu og Rússlands eru óðum að komast í lag. Stór gasleiðsla í Norður-Ossetíu var hins vegar sprengd í loft upp í gær. Stjórnvöld í Moskvu kenna aðskilnaðarsinnum á svæðinu um spellvirkið en georgískir embættismenn telja fullvíst að Kremlverjar hafi sjálfir lagt á ráðin um það til að koma af stað orkukreppu í landinu. 23.1.2006 12:30
GSA fagna fimm ára afmæli samtakanna GSA (Greysheeters Anonymous) halda upp á fimm ára afmæli samtakanna hér á landi með opnum kynnigarfundi næstkomandi fimmtudag. Um þessar mundir er verið að kynna samtökin öllum heilsustéttum í landinu og öðrum sem láta sig málið varða. 23.1.2006 12:23
HB Grandi hefur sagt upp allri áhöfninni á Víkingi AK 100 HB Grandi hefur sagt upp allri áhöfninni á Víkingi AK 100 og ætlar að leggja skipinu eftir loðnuvertíð fram í janúar á næsta ári. Verkefnaskortur er ástæðan segir deildarstjóri HB Granda. 23.1.2006 12:22
Frambjóðendur njóta góðs af valdamiklum stuðningsmönnum Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur á landsvísu í flokknum, hafi óeðlileg áhrif á afstöðu framsóknarmanna til prófkjörs flokksins í Reykjavík. 23.1.2006 12:15
Björn segir verið að reyna að koma höggi á sig Björn Ingi Hrafnsson, frambjóðandi í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, segir það enga tilviljun að sögusagnir af því að stuðningsmenn hans hafi veitt unglingum áfengi séu blásnar upp svo skömmu fyrir prófkjör. Björn sakar stuðningsmenn annars frambjóðanda um að reyna að koma höggi á sig. 23.1.2006 12:05
Meintir sjóræningjar handteknir Bandaríski sjóherinn handtók hóp meintra sjóræningja á skipi á Vestur-Indlandshafi í gær. Talið er að þeir hafi rænt ýmsum verðmætum af nokkrum flutningaskipum á hafsvæðinu undan ströndum Sómalíu undanfarna daga. 23.1.2006 11:31
Miklir skógareldar í Ástralíu Fjölmörg heimili og byggingar hafa eyðilagst í skógareldum í Ástralíu undanfarna daga. Tveir hafa látist en lögreglan rannsakar hvort dauðsföllin megi rekja til skógareldanna eða vegna annarra orsaka en fólkið fannst látið í bíl. 23.1.2006 11:22
Fá útköll vegna ölvunar Helgin var róleg í umdæmi lögreglunnar á Álftanesi, í Garðabæ og í Hafnarfirði. Ekki var mikið um útköll vegna ölvunar í heimahúsum og rólegt var á skemmtistöðum. Alls voru fimmtán umferðaróhöpp tilkynnt til lögreglunnar en engin slys urðu á fólki. Þó varð nokkuð eignatjón í nokkrum þeirra. 23.1.2006 11:09
137 verkefni hjá lögreglunni á Akranesi Lögreglan á Akranesi sinnti alls 137 verkefnum í síðustu viku en þar af voru um 80 sem tengdust umferðinni. Ellefu ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Nokkur hálka var á vegum og því voru ökumenn ekki að keyra eftir aðstæðum. 23.1.2006 10:33
Kennsla hefst í kínverskum fræðum í dag Kennsla hefst í kínversku og kínverskum fræðum hjá Símenntun Háskólans á Akureyri í dag. Alls verða kennd þrjú námskeið á þessu misseri, Kínverska I, Kínversk nútímamenning og Viðskipti við Kína. Aðsókn á námskeiðin fór fram úr björtustu vonum og þurfti að vísa nemendum frá. Gert er ráð fyrir að auka námsframboð í framtíðinni en frá og með hausti 2006 munu Háskólinn á Akureyri og Háskóli Íslands bjóða upp á sameiginlegt B.A nám í Austur-Asíufræðum. 23.1.2006 10:12
Gassprengja sprakk í Aþenu Gassprengja sprakk fyrir utan skrifstofu íhaldsflokksins og pósthúss í Aþenu í morgun en enginn slasaðist. Líttþekktur hópur stjórnleysingjar hefur lýst ábyrgð á sprengjunni. Í síðustu viku var sprakk sprengja fyrir utan aðrar skrifstofu íhaldsflokksins og fyrir utan banka í Aþenu en enginn hefur lýst ábyrgð á því ódæði. 23.1.2006 09:25
Þrír hafa slasast alvarlega á nautahátíð í Kólumbíu Þrír hafa slasast alvarlega á Nautahátíðinni í Kólumbíu, sem haldin er árlega í fjölda bæja í norðurhluta landsins, eftir að hafa orðið fyrir barðinu á skepnunum sem hátíðin er kennd við. Níu til viðbótar hafa þurft að leita sér læknishjálpar vegna minniháttar áverka. 23.1.2006 08:08
Bændur ná háum aldri í Danmörku Bændur verða karla elstir í Danmörku, meðal þeirra stétta, þar sem fólk, vinnur sjálfstætt. Dánartíðnin er aftur á móti hæst meðal leigubílstjóra. Danska hagstofan kann enga örugga skýringu á þessu en getur sér þess til, að engin leggi út í búskap nema að vera fíl hraustur. 23.1.2006 08:06
Allri áhöfn Víkings AK 100 sagt upp störfum Allri áhöfn á Víkingi AK 100 var sagt upp störfum síðastliðinn laugardag. Skipið mun þó klára þessa loðnuvertíð ef veiðanleg loðna finnst. Skipinu verður lagt eftir loðnuvertíð fram í janúar á næsta ári. Ástæða uppsagnarinnar er verkefnaskortur segir í uppsagnabréfi til starfsmanna sem undirritað var af Vilhjálmi Vilhjálmssyni deildarstjóri HB Granda. 23.1.2006 08:04
Pólitískur styrkur mismikill meðal stuðningsmanna Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir að valdahópur innan flokksins sé búinn að setja stuðningsmenn Önnu Kristinsdóttur og Óskars Bergssonar í prófkjöri flokksins í Reykjavík í þá aðstöðu, að ganga gegn vilja valdamikilla manna í flokknum á landsvísu. 23.1.2006 08:00
Rússar saka breta um njósnir Rússnesk ríkissjónvarpsstöð segist hafi í höndum myndband sem sýni breska njósnara að störfum í Moskvu. Nýverið birti sjónvarpsstöðin viðtöl við rússneska njósnara sem töldu að breskir njósnarar hefðu komið fyrir sendi við götu í borginni og breskir sendiráðsstarfsmenn hefðu gengið framhjá sendinum til að hlaða niður upplýsingum. 23.1.2006 08:00
Verið að opna vegi á Vestfjörðum Nokkur hálka er á Vesturlandi, í Árnesi og Rangárvallasýslum. Á Vestfjörðum er verið að opna veginn til Patreksfjarðar um Klettsháls og Kleifarheiði og þaðan til Bíldudals um Háldfán. Þá er einnig verið að moka frá Ísafirði um Djúp yfir Steingrímsfjarðarheiði og suður fyrir. Á Öxnadalsheiði er skafrenningur, og hálka eða hálkublettir eru víða á Norðurlandi og Austurlandi. 23.1.2006 07:57
Sjóræningjar handsamaðir undan ströndum Sómalíu Bandaríski sjóherinn handtók hóp meintra sjóræningja á skipi á Vestur-Indlandshafi í gær. Talið er að þeir hafi rænt ýmsum verðmætum af nokkrum flutningaskipum á hafsvæðinu undan ströndum Sómalíu undanfarna daga. 23.1.2006 07:54
Flugdólgur reyndi að opna hurð á fljúgandi ferð 39 ára gömul bandarísk kona olli nokkurri hræðslu meðal farþega um borð í SAS flugvél þegar hún reyndi að opna hurð á flugvélinni sem var í 10 kílómetra hæð. Flugvélin var á leið frá Zurich til Kaupmannahafnar. Konan var mjög óróleg en flugáhöfnin kom í veg fyrir að henni tækist ætlunarverk sitt. Þegar vélin lenti á Kastrup flugvelli var lögreglan kölluð á staðinn sem flutti hana á geðdeild. Talið er að konan hafi ætlað að fremja sjálfsmorð. 23.1.2006 07:45
Hafnaði upp á vegriði Drukkinn ökumaður misti stjórn á bíl sínum í nótt með þeim afleiðingum að hann hafnaði upp á vegriði og komst hvorki lönd né strönd. Þetta gerðist rétti við Skeiðarvogsbrúnna yfir Miklubraut og sat ökumaðurinn enn í bílnum, þegar lögregla kom á vettvang. Hún fjarlægði ökumanninn og kranabíll bílinn hans, sem skemmdist nokkuð. 23.1.2006 07:20
Engar áætlunarferðir um sunnanvert Snæfellsnes Engar áætlunarferðir eru lengur um sunnanvert Snæfellsnes eftir að Sæmundur í Borgarnesi hætti sérleyfisakstri um síðustu mánaðamót og nýr aðilli tók við rekstirnum. Þannig geta stut ferðalög á Vesturlandi breyst í langferðir eins og til dæmis ef einhver úr Staðarsveit á sunnanverðu nesinu þarf að komast til Akraness. 23.1.2006 07:18
Skólahald með eðlilegum hætti Skólahald verður með eðlilegum hætti í Fellaskóla í Reykjavík í dag eftir mikla herferð gegn músagangi í skólanum um helgina. Umhverfissvið borgarinnar hafði í vikunni gert skólayfirvöldum að koma í veg fyrir músaganginn, ella yrði ekkert skólahald í dag eða næstu daga. Við úttekt umhverfissviðs á skólanum í gærkvöldi kom í ljós að árngur hafði orðið af alls herjar hreingerningu og holufyllingum í skólanum um helgina. 23.1.2006 07:11
Hækkandi raforkuverð ekki ástæðan Landsvirkjun mótmælir þeirri skýringu, sem stjórnendur Sæsilfurs gáfu nýverið, þess eðlis að hækkandi raforkuverð sé önnur aðal ástæða þess fyrirtækið ætli að hætta öllu laxeldi í Mjóafirði, en þar er meira en helmingur alls laxeldis í landinu. 23.1.2006 07:09
Húsleit í höfuðstöðvum Yamaha Motor Japanska lögreglan gerði húsleit í höfuðstöðvum Yamaha Motor í nágrenni Tokyo í morgun. Grunur leikur á að fyrirtækið hafi verið að selja ólöglegar þyrlur til Kína, fjarstýrðar þyrlur til að nota í hernaðarlegum tilgangi. Þyrlurnar hafa ekki verið samþykktar til sölu af efnahags-, viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu. 23.1.2006 06:51
Barna- og fjölskylduguðþjónusta var haldin í Grafarvogskirkju í morgun Barna- og fjölskylduguðþjónusta var haldin í Grafarvogskirkju í morgun og var börnum boðið til hennar úr nágrannakirkjunum til að taka þátt í gleðinni. Íbúar Latabæjar komu í heimsókn en það voru þær Solla stirða og Halla hrekkjusvín sem töluðu við krakkana og fylgdust með guðsþjónustunni. 22.1.2006 18:39
Stjórnarmenn Sörla mæla með sjálfum sér. Margir félagsmenn hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði eru ekki sáttir við nýja tillögu stjórnar Sörla um úthlutun hesthúsalóða við Kaplaskjól en 3 stjórnarmenn félagsins mæltu með sjálfum sér á lista yfir þá sem kæmu til greina af þeim 120 sem sóttu um þær 14 lóðir sem til úthlutunar eru. 22.1.2006 18:33
Kanna hvort ungmennum hafi verið veitt áfengi Lögregla rannsakar nú hvort stuðningsmenn Björns Inga Hrafnssonar, frambjóðanda í prófkjöri framsóknarmanna í Reykjavík, hafi veitt unglingum undir lögaldri áfengi. 22.1.2006 18:30
Sakar Rússa um óþokkaverk Mikhail Saakashvili forseti Georgíu sakaði Rússa í dag um að stöðva gasveitu til Georgíu um miðjan harðindavetur. Rússnesk leiðsla í Norður-Ossetíu sem flytur gas til Georgíu og Armeníu var sprengd upp í morgun. 22.1.2006 16:53
Rafiðnaðarmenn frá öllum heimsálfum Rafiðnaðarmenn frá öllum heimsálfum nema Suðurskautslandinu eru komnir til starfa á Íslandi. 101 erlendur rafiðnaðarmaður er félagi í Rafiðnaðarsambandi Íslands. Flestir eru frá Slóvakíu, nítján, og Króatíu, átján. Aðrir koma svo langt frá sem Kólumbíu, Suður-Afríku og Víetnam. 22.1.2006 15:15
Heimsmet í fjölda lestafarþega Talið er að 37 milljónir manna hafi ferðast með kínverskum lestum síðasta sólarhringinn. Þetta er met því aldrei áður hafa jafnmargir ferðast með lestum sama daginn þrátt fyrir að aflýsa hafi þurft mörgum ferðum vegna snjókomu. 22.1.2006 14:00