Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Krydd innkallað Tvær kryddtegundir hafa verið innkallaðar eftir að í ljós kom að ólöglegt litarefni var að finna í þeim. Um er að ræða Rajah Mild Madras Curry Poweder og Rajah Hot Madras Curry Powder í hundrað gramma dósum. 20.1.2006 13:02
Tugir leikskólakennara mættir Fjöldi leikskólakennarar er mættur í hús Orkuveitu Reykjavíkur þar sem launaráðstefna sveitarfélaganna er í þann mund að hefjast. Með nærveru sinni vilja leikskólakennarar þrýsta á um að kjör þeirra verði bætt. 20.1.2006 12:49
Öllu laxeldi hætt í Mjóafirði Dótturfélag Samherja og Síldarvinnslunnar í Neskaupstað hefur ákveðið að hætta öllu laxeldi í Mjóafirði, en þar er nú yfir helmingur alls laxeldis í landinu. Vísbendingar eru um að laxeldið sé að taka aðra kollsteypu. 20.1.2006 12:45
Hörð samkeppni Íslendinga erlendis Allt stefnir í harða samkeppni íslenskra fyrirtækja á fasteignamarkaðnum á meginlandi Evrópu þar sem Baugur og Straumur-Burðarás munu takast á. 20.1.2006 12:30
Sammála um að hætta viðræðum Iðnaðarráðherra, fjármálaráðherra, borgarstjórinn í Reykjavík og bæjarstjórinn á Akureyri hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu um að ekki séu lengur forsendur fyrir frekari viðræðum um kaup ríkisins á hlut Reykjavíkur og Akureyrar í Landsvirkjun. 20.1.2006 12:29
Lést í bílslysi Stúlkan sem lést þegar bíll hennar fór út af Hnífsdalsvegi og hafnaði úti í sjó í gærdag hét Þórey Guðmundsdóttir. Þórey var fædd árið 1988 og hefði hún orðið átján ára í mars. Þórey var til heimilis að Garðavegi í Hnífsdal. Lögreglan á Ísafirði rannsakar tildrög slyssins. 20.1.2006 12:26
Flugbanni aflétt vegna hátíðahalda Tæplega sextíu ára flugbanni á milli Taívans og Kína hefur verið aflétt til að auðvelda þeim Taívönum sem búa í Kína að skreppa heim yfir hátíðirnar, en Kínverjar fagna nýju ári um þessar mundir. 20.1.2006 12:19
Íslensk stúlka hætt komin Íslensk stúlka var hætt komin þegar henni var haldið í gíslingu í Naíróbí í Keníu í um tvær klukkustundir. Fimm menn réðust inn á heimilið sem hún bjó á, vopnaðir byssum og ógnuðu heimilisfólki. 20.1.2006 12:03
Safnast saman fyrir utan launamálaráðstefnu Leikskólakennarar á höfuðborgarsvæðinu ætla að safnast saman fyrir utan hús Orkuveitu Reykjavíkur eftir hádegi í dag, við upphaf launamálaráðstefnu sveitarfélaganna, til að leggja áherslu á kröfur sínar um bætt launakjör. Miklar vonir eru bundnar við að á ráðstefnunni náist samkomulag um laun leikskólakennara og ófaglærðra starfsmanna leikskólanna. 20.1.2006 12:02
Mikil hækkun á Avion við skráningu Verðmæti Avion Group jókst um tæpa tuttugu milljarða króna á fyrstu mínútunum eftir opnun Kauphallar Íslands í morgun. Avion er lang stærsta fyrirtækið sem skráð hefur verið í Kauphöllina en skráning þess hófst þar í morgun. 20.1.2006 12:00
Mál Bubba gegn 365 tekið fyrir Mál Bubba Morthens gegn 365 prentmiðlum og Garðari Erni Úlfarssyni vegna umfjöllunar tímaritsins Hér og nú um Bubba var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Lögmenn lögðu fram gögn í morgun og þeim gefst frekari tími til að afla gagna áður en málsmeðferð hefst. 20.1.2006 11:50
Skoða hvernig efla megi starfsnám Menntamálaráðherra hefur skipað átta manna nefnd sem á að skoða leiðir til að efla starfsnám. Meðal þess sem á að skoða er hvernig stuðla megi að aukinni aðsókn í starfsnám og tryggja fjölbreytt námsframboð. Formaður nefndarinnar er Jón B. Stefánsson, skólameistari Fjöltækniskóla Íslands. 20.1.2006 10:45
Vill veiðibann á loðnuna Loðnuveiðar á að stöðva og setja á veiðibann strax, sagði Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður Frjálslynda flokksins, við upphaf þingfundar. Hann sagði ástand loðnustofnsins grafalvarlegt og vildi að hætt yrði að veiða það litla sem finndist við loðnuleit. 20.1.2006 10:44
Félagsráðgjafar felldu samning Félagsráðgjafar felldu nýgerðan kjarasamning sinn við Reykjavíkurborg með miklum meirihluta í atkvæðagreiðslu sem lauk nú í vikunni. Kosningaþátttaka var um 90 prósent og greiddu nær allir atkvæði gegn samningnum. 20.1.2006 10:40
Mótmæla trúnaðarkvöð Stjórnarandstæðingar mótmæltu því á fundi menntamálanefndar Alþingis í morgun að þeir yrðu að heita trúnaði gegn því að fá afhent afrit af bréfaskiptum mennta- og fjármálaráðuneytisins við Eftirlitsstofnunar EFTA vegna athugunar stofnunarinnar á Ríkisútvarpinu. 20.1.2006 10:15
Íranar færa til fjármuni Íranar eru byrjaðir að færa til fjármuni sem þeir geyma á bankareikningum erlendis. Bankastjóri íranska seðlabankans segir ástæðuna vera þá að Íranar vilji hafa vaðið fyrir neðan sig ef gripið verður til efnahagsþvingana gegn þeim. 20.1.2006 10:00
Víða óveður og ófærð Óveður og ófærð gera ökumönnum erfitt fyrir víða um land samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni. Ófært er um Klettsháls, Eyrarfjall og Öxi. Á Mörðrudalsöræfum og á Vopnafjarðarheiði er þungfært og óveður og þungfært á Breiðdalsheiði. 20.1.2006 09:37
Styðja biskup Íslands Samvinnuhópur tuttugu kristinna trúfélaga og nítján einstaklinga hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir stuðningi við Biskup Íslands og harmað fráhvarf kristinna siðferðisgilda sem ríkisstjórn Íslands sýnir með frumvarpi til laga um réttarstöðu samkynhneigðra. Í yfirlýsingunni segir að hjónaband sé sáttmáli á milli einnar konu og eins karls og minnt er á rétt barns til að þekkja báða foreldra sína. 20.1.2006 09:15
Fannst meðvitundarlaus í Bláfjöllum Stúlka fannst meðvitundarlaus laust fyrir klukkan tíu í gærkvöld, í efstu brekkunni við elstu stólalyftuna í Bláfjöllum, og var þegar kallað á sjúkrabíl sem flutti hana á Slysadeild Landsspítalans. 20.1.2006 09:15
Vilja brotthvarf frá Vesturbakkanum Meirihluti Ísraela er fylgjandi því að Ísraelar hverfi einhliða frá því landssvæði á Vesturbakkanum sem þeir hernámu í Sex daga stríðinu árið 1967. 51 prósent aðspurðra segjast fylgjandi þessu í nýrri skoðanakönnun fyrir ísraelska dagblaðið Maariv. 20.1.2006 09:15
Næst lægst verðbólga hér Pólland er eina ríkið á Evrópska efnahagssvæðinu þar sem verðbólga er lægri en á Íslandi samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs. Verðbólgan mælist samkvæmt þessu eitt prósent á Íslandi frá desember 2004 til desember 2005 en 0,8 prósent í Póllandi. 20.1.2006 09:14
Upplýstu sex fíkniefnamál Sex fíkniefnamál og vopnalagabrot komu upp í sameiginlegu átaki lögreglunnar í Kópavogi og Hafnarfirði í nótt. Við leit í tveimur húsum og á fólki fannst amfetamín, kókaín, hass og marijúana, en lögregla gefur ekki upp hversu mikið. Þá var lagt hald á rafstuðbyssu, hnífa og kylfur. 20.1.2006 09:00
Haldið í gíslingu í tvo tíma Tvítugri íslenskri stúlku var haldið í tvo tíma í gíslingu í Naíróbí í Kenýa ásamt fleira fólki á föstudaginn fyrir viku. Fimm vopnaðir ræningjar réðust þá inn í húsið og ógnuðu fólki með skotvopnum meðan þeir hrifsuðu til sín skartgripi og verðmæti, engum skotum var þó hleypt af. 20.1.2006 08:45
Tildrög slyssins rannsökuð í dag Rannsóknanefnd bílslysa er væntanleg til Ísafjarðar í dag til að rannsaka tildrög banaslyss, sem varð á Óshlíðarvegi á milli Ísafjarðar og Hnífsdals síðdegis í gær, þegar ung kona missti stjórn á bíl sínum í flug hálku með þeim afleiðingum að bíllinn hafanði ofan í sjó. 20.1.2006 08:30
Tyrkneskt þorp í sóttkví Bandarískir sérfræðingar settu tyrkneska þorpið Beypazari í sóttkví til að reyna að hefta útbreiðslu fuglaflensunnar í Tyrklandi. Sérfræðingarnir eru staddir í landinu til að aðstoða tyrknesk yfirvöld að ná tökum á útbreiðslu flensunnar en að minnsta kosti tuttugu og einn maður hefur látist af hennar völdum á þessu ári, þar af fjögur börn. 20.1.2006 08:30
Sýrlendingar styðja Írana Bashar Assad, leiðtogi Sýrlendina lýsti yfir stuðningi við kjarnorkutilraunir Írana eftir fund sem hann átti með forsætisráðherra Írana, Mahmoud Ahmadinejad, í gær. Bashar Assad sagði Vesturlandabúa ekki hafa rökstudd nægilega hvers vegna þeir eru andvígir tilraunum Írana. 20.1.2006 08:15
28 milljarða hagnaður Baugs Baugur Group hagnaðist um 28 milljarða króna eftir skatta á síðasta ári. Þar af eru fimmtán milljarðar króna í formi innleysts hagnaðar. Eignir Baugs í árslok voru bókfærðar á 145 milljarða króna og eigið fé var 62,9 milljarðar. 20.1.2006 07:11
44 farast í flugslysi Einn komst lífs af og fjörtíu og fjórir fórust þegar herflugvél brotlenti í fjalllendi í norð-austur Ungverjalandi í gærkvöldi. Vélin var á leið frá Kosovo til slóvensku borgarinnar Kosice þegar hún brotlenti. Um borð voru 38 farþegar, þar af 28 slóvenskir hermenn sem voru á leið heim eftir að hafa verið við störf á vegum friðargæslusveitar Nató. 20.1.2006 07:00
Gefur ekki upp hvort fleiri gætu tengst málinu Lögfræðingur Landspítalans vill ekki tjá sig um það hvort fleiri geti tengst meintu fjármálamisferli á glasafrjóvgunardeild Landspítalans á árunum 2002 til 2004. Málið er til rannsóknar hjá Ríkislögreglustjóra. Upphæðin sem um ræðir hleypur á milljónum króna. 19.1.2006 22:56
Ný heilsugæslustöð Ný heilsugæslustöð sem þjónar um níu þúsund íbúum í Voga- og Heimahverfi var vígð í dag. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra afhenti húsnæði Heilsugæslustöðvarinnar í Glæsibæ að viðstöddu fjölmenni. 19.1.2006 22:16
Þorrinn hefst með Bóndadegi á morgun Þorrinn hefst á morgun með tilheyrandi þorramat og þorrablótum. Bóndadagur markar upphaf Þorrans en samkvæmt hefðinni eiga karlmenn að vakna árla morguns og hoppa um hálfnaktir á einum fæti í kringum hús sitt. 19.1.2006 22:08
Viðgerð lokið á ljósleiðara við Hvalfjarðargöng Internetsamband er komið aftur á til viðskiptavina Og Vodafone á Akranesi og nágrenni en ljósleiðari fór í sundur rétt við Hvalfjarðargöngin á þriðja tímanum í dag. 19.1.2006 21:48
Beint flug með Iceland Express frá Akureyri til Kaupmannahafnar í sumar Iceland Express hefur beint flug milli Akureyrar og Kaupmannahafnar í sumar og verður fyrsta ferðin farin 29. maí segir í tilkynningu frá félaginu. Vikulegar ferðir verða fram á haustið og jafnvel lengur. 19.1.2006 20:46
Ekkert óeðlilegt við viðskipti KB banka með íbúðabréf segir Fjármálaeftirlitið Fjáramálaeftirlitið telur ekki ástæðu til að skoða frekar viðskipti KB banka með íbúðabréf á degi sem Íbúðalánasjóður var með útboð á íbúðabréfum sínum í lok nóvember á síðasta ári 19.1.2006 20:29
Meint fjármálamisferli á Landspítalanum í rannsókn Meint fjármálamisferli á glasafrjóvgunardeild Landspítalans er til rannsóknar hjá ríkislögreglustjóra. Frá þessu var greint í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins. Einum starfsmanni hefur verið vikið úr starfi vegna gruns um að hafa verið viðriðinn málið. 19.1.2006 20:18
Þyrla Landhelgisgæslunnar sækir veikan sjómann Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna veiks skipverja um borð í bát sem staddur var 25 sjómílur vestur af Snæfellsnesi sem er um 2 og ½ tíma siglingu frá Ólafsvík. 19.1.2006 20:11
Skattbyrði jókst hvergi meira í iðnríkjum heims en á Íslandi Skattbyrði jókst hvergi meira í iðnríkjum heims en á Íslandi á árunum 1995 til 2004. Þetta sýna skattaskýrslur OECD. Ísland er nú komið í hóp þeirra tíu ríkja þar sem skattbyrði er þyngst. Núverandi stjórnarflokkar settust að völdum árið 1995 og hafa síðan verið iðnir við að halda því fram að þeir væru að lækka skatta. 19.1.2006 19:54
Frumvarp um Kjaradóm og kjaranefnd verður að öllum líkindum afgreitt á morgun Frumvarp um Kjaradóm og kjaranefnd verður að öllum líkindum afgreitt óbreytt sem lög frá Alþingi fyrir helgi. Þing kemur saman á morgun en frumvarpið er eina málið á dagskrá. 19.1.2006 19:48
Ung kona beið bana þegar bíll sem hún ók fór út af Hnífsdalsvegi og hafnaði í sjó Ung kona, innan við tvítugt, beið bana síðdegis þegar bíll sem hún ók fór út af Hnífsdalsvegi og hafnaði í sjó. Neyðarlínunni barst tilkynning um slysið klukkan rúmlega fjögur í dag. Slökkvilið, lögregla og björgunarsveitir voru sendar á vetvang og voru aðstæður á slysstað erfiðar. 19.1.2006 18:26
Sparisjóður Hafnarfjarðar dæmdur í Hæstarétti til að greiða manni 33 milljónir Sparisjóður Hafnarfjarðar var dæmdur í Hæstarétti í dag til að greiða manni skaðbætur uppá tæplega 33 milljónir vegna vanrækslu starfsmanna Sparisjóðsins. Vegna mistaka starfsfólksins féll fullnusturéttur á hendur útgefanda niður og taldi maðurinn sig því hafa orðið fyrir fjárhagstjóni sem upphæðinni nemur. 19.1.2006 17:54
Ríkisskattstjóri fellst á að einkennisklæðnaður ákveðinna stétta sé skattfrjáls Ríkisskattstjóri hefur tekið til greina ábendingar BSRB varðandi skattlagningu einkennisfatnaðar sem ákveðnar stéttir þurfa að klæðast vegna starfs síns. 19.1.2006 16:33
Ljósleiðari fór í sundur Ljósleiðari fór í sundur rétt við Hvalfjarðargöngin á þriðja tímanum í dag. Viðskiptavinir Og Vodafone á Akranesi og nágrenni eru netsambandslausir vegna þessa og er viðgerð þegar hafin. Ljósleiðarinn fór í sundur vegna jarðvegsvinnu. 19.1.2006 16:25
Ofbeldisfullir mótmælendur hertóku götur Abidjan í dag Ofbeldisfullir mótmælendur hertóku götur Abidjan,stærstu borgar Fílabeinsstrandarinnar, í dag, fjórða daginn í röð. Friðargæsluliðar hafa þurft að beita táragasi til að halda aftur af æfum mótmælendum fyrir utan höfðustöðvar Sameinuðu þjóðanna í borginni. 19.1.2006 16:05
Samningur um miðlæga stýringu umferðarljósa undirritaður Reykjavíkurborg og Vegagerðin hafa undirritað samning við Siemens um nýtt vöktunar- og stýrikerfi fyrir umferðarljós í Reykjavík. Samningurinn hljóðar uppá sextíú og fimm milljónir króna og mun kostnaður þessi skiptast jafnt á milli aðila. 19.1.2006 15:38
Hjálparsveit skáta í Hveragerði fær 1.000.000 kr styrk úr Pokasjóði ÁTVR Ívar J. Arndal, forstjóri ÁTVR, og Bjarni Finnson formaður stjórnar Pokasjóðs færðu Hjálparsveitinni í Hveragerði eina milljón króna í styrk til kaup á tækjum fyrir sveitina. 19.1.2006 15:14