Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
140 umsóknir á fyrsta degi 140 umsóknir bárust í dag um þrjátíu einbýlishúsalóðir í Lambaseli, strax á fyrsta degi. Reyna á að slá á eftirspurnina með því að úthluta fyrr en áætlað var lóðum undir 900 íbúðir í landi Úlfarsfells. 21.3.2005 00:01
Vonbrigði segir viðskiptaráðherra Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra segir það mikil vonbrigði að kona skyldi ekki ná kjöri til setu í aðalstjórn Sparisjóðabanka Íslands. 21.3.2005 00:01
Í átthagafjötrum á Laugaveginum Stærri verslanir vantar við Laugaveginn til að draga að sér viðskiptavini. Það mun bjarga minni kaupmönnum við götuna, en rekstur verslana þeirra hefur verið í járnum. Þetta er álit kaupmannanna, eins og fram kom á borgarafundi um verndun og uppbyggingu við Laugaveginn. 21.3.2005 00:01
Bondevik að mýkjast Kjell Magne Bondevik, forsætisráðherra Noregs, virðist vera að mildast í afstöðu sinni til Evrópusambandsins en hann hefur hingað til þvertekið fyrir að Noregur sæki um aðild fái hann einhverju ráðið. 21.3.2005 00:01
Dómarar lífs og dauða Vandamenn Terri Schiavo bíða nú milli vonar og ótta eftir að alríkisdómari skeri úr um hvort fjarlægja megi næringarslöngur sem halda lífinu í þessari 41 árs heilaskemmdu konu. 21.3.2005 00:01
Róttækustu breytingar í sögu SÞ Róttækar á skipulagi og starfi Sameinuðu þjóðanna voru formlega kynntar á Allsherjarþingi samtakanna í gær. Meðal annars er búist við að sætum í öryggisráðinu verði fjölgað umtalsvert. 21.3.2005 00:01
Frekari landnemabyggðir boðaðar Stjórnvöld í Jerúsalem tilkynntu í gær að á næstunni yrðu 3.500 hús reist fyrir landnema á Vesturbakkanum. Allar líkur eru á að ákvörðunin spilli fyrir friðarumleitunum á svæðinu. 21.3.2005 00:01
Krytur í Kirgisistan Forseti Kirgisistans hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á meintum svikum í þingkosningum landsins í febrúarlok. Þúsundir manna flykktust út á götur stærstu borga landsins í gær og kröfðust afsagnar forsetans. 21.3.2005 00:01
Skæruliðar stráfelldir Til átaka kom á milli bandarískra hermanna og íraskra uppreisnarmanna skammt utan við Bagdad í gær sem lyktaði með því að 26 skæruliðar voru felldir. 21.3.2005 00:01
Geimfarasviti á hamfarasvæðin Bandaríska geimferðastofnunin, NASA, hefur fundið nýstárlega leið til vatnsframleiðslu sem verður tekin í gagnið á næstu mánuðum. 21.3.2005 00:01
Undirbúa kvörtun til ESA Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka iðnaðarins, segir að ný lög um olíugjald, sem taka gildi 1. júlí næstkomandi, feli í sér ólögmæta mismunum á skattlagningu ökutækja. Samtök Iðnaðarins muni væntanlega vísa málinu til eftirlitsstofnunar EFTA, ESA. 21.3.2005 00:01
Lægri sektir fyrir fyrsta brot Sektir við brotum gegn fjórum lagabálkum um fiskveiðar geta lækkað verulega eftir að Alþingi samþykkti frumvarp Örlygs Hnefils Jónssonar, varaþingmanns Samfylkingar, um að fella niður lágmarkssektir fyrir fyrsta brot gegn lögum um fiskveiðar. 21.3.2005 00:01
42 látnir í námuslysi í Kína 42 eru látnir og 27 námuverkamenn eru innilokaðir í kolanámu í norðurhluta Kína eftir gassprengingu í námunni í gær. Fjórir eigendur námunnar eru í haldi lögreglu en þeim var skipað í nóvember í fyrra að loka henni þar sem kröfur um öryggi voru ekki uppfylltar. 20.3.2005 00:01
Tímasprengja sprakk í Pakistan Tímasprengja sprakk seint í gær við helgidóm múslíma í suðvesturhluta Pakistans og að minnsta kosti 29 manns eru látnir og margir slasaðir. Yfirvöld telja ekki að hryðjuverkasamtök hafi verið þar að verki heldur sé um hatrammar fjölskyldudeilur að ræða. 20.3.2005 00:01
Tekinn með fíkinefni á Hellisheiði Selfosslögregla stöðvaði fólksbíl á austurleið á Hellisheiði um klukkan 8 á gærkvöld. Í ljós kom að ökumaður, karlmaður um þrítugt sem var einn á ferð, var með sex grömm af hassi og sex grömm af amfetamíni í fórum sínum. Hann var tekinn til yfirheyrslu og sleppt að henni lokinni. 20.3.2005 00:01
Öflugur skjálfti við japanska eyju Kröftugur jarðskjálfti sem mældist 7 stig á Richter reið yfir eyjuna Kyushu í Japan í morgun. Fjölmiðlar þar í landi segja eina konu, 75 ára gamla, hafa fundist látna en að að minnsta kosti 340 manns hafi slasast. Nokkur hús hafa hrunið og hundruð manna þurft að flýja heimili sín. 20.3.2005 00:01
Afpláni skemmri dóma heima hjá sér Dómsmálaráðherra Danmerkur, Lene Espersen, ætlar að leggja fram tillögu á hausti komanda um að ungir menn sem lenda í slagsmálum og öðrum vandræðagangi í ölæði fái að afplána refsingu vegna afglapa sinna heima hjá sér í stað þess að þurfa að sitja í fangelsi. Munu þeir þurfa að ganga með rafrænan hlekk um ökklann sem fer í gang ef þeir fara lengra frá heimili sínu en nokkra tugi metra. 20.3.2005 00:01
Þrír meirihlutar á kjörtímabili Nýr meirihluti hefur verið myndaður í bæjarstjórn Blönduóss, sá þriðji á kjörtímabilinu. Sjálfstæðismenn og H-listi vinstri manna og óháðra tilkynntu í gærkvöldi að þeir hefðu myndað nýjan meirihluta en fyrri meirihluti H-lista og Á-lista bæjarmálafélagsins Hnjúka sprakk í vikunni. 20.3.2005 00:01
Einn fékk lottóvinninginn Einn var með allar tölur réttar í laugardagslottóinu og fær fjórfaldan pott, tæpar 17 milljónir króna í sinn hlut. Vinningstölur kvöldsins voru 3 - 5 - 20 - 24 - 33. Bónustalan var 23. 20.3.2005 00:01
Tíu ár frá sarínárás í Tókýó Japanar minnast þess í dag að tíu ár eru liðin frá einhverri stærstu hryðjuverkaárás sem gerð hefur verið í landinu þegar meðlimir ofsatrúarreglu dreifðu taugagasi í lestarvögnum í Tókýóborg. Trúarreglan starfar enn. 20.3.2005 00:01
Náttúrufræðingar semja við ríkið Félag íslenskra náttúrufræðinga undirritaði í fyrradag nýjan kjarasamning við ríkið. Hann gildir frá 1. mars í ár til 30. apríl 2008 og var undirritaður með fyrivara um samþykki félagsmanna. Í tilkynningu frá félaginu segir að áfangahækkanir samningsins séu á svipuðum nótum og samið hefur verið um hjá öðrum félögum BHM. 20.3.2005 00:01
Hollendingar efast um Wolfowitz Fjármálaráðherra Hollands hefur hreyft mótmælum við tilnefningu Pauls Wolfowitz, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í stöðu bankastjóra Alþjóðabankans og segir að það færi best á því að tilnefna fleiri en einn í stöðuna. Það vakti mikla undrun og viðbrögð þegar Bush tilnefndi Wolfowitz enda er hann einna þekktastur fyrir harðlínuafstöðu sína í Íraksstríðinu en litlum sögum hefur hins vegar farið af afstöðu hans til þróunarmála. 20.3.2005 00:01
Náðu að lama krabbameinsfrumur Vísindamenn hafa fundið aðferð til að lama krabbameinsfrumur og fá þær einfaldlega til að fremja sjálfsmorð. Þessar niðurstöður eru kynntar í hinu virta tímariti <em>Genes and Development</em>. Það voru vísindamenn við dönsku krabbameinsvarnamiðstöðina sem gerðu þessa uppgötvun. 20.3.2005 00:01
Notuðu lík í árekstrartilraunum Tækniháskólinn í Graz í Austurríki notaði mannslík í staðinn fyrir hefðbundnar dúkkur í árekstrartilraunum sem hann gerði fyrir Evrópusambandið í tæplega áratug. Fjölmiðlar í Austurríki hafa flett ofan af þessu og hefur þetta valdið miklu fjaðrafoki í landinu. 20.3.2005 00:01
Sjálfsmorðsárás í leikhúsi í Katar Óttast er að hryðjuverkasamtökin al-Qaida hafi látið til skarar skríða í Katar í morgun. Sjálfsmorðsárásarmaður grandaði einum Breta með því að aka bíl hlöðnum sprengiefni inni í leikhús. 20.3.2005 00:01
Skógarþrösturinn kominn Fyrstu farfuglarnir hafa verið að koma til landsins síðustu daga og nú í morgun sást fyrsti skógarþrösturinn við Fuglaathugunarstöð Suðausturlands. Á Suðausturlandi hafa menn orðið varir við nokkur hundruð tjalda í síðustu viku og heldur tjaldurinn sig aðallega á leirunum í Hornafirði og Skarðsfirði. 20.3.2005 00:01
Bush styttir frí vegna deilna George Bush Bandaríkjaforseti hefur ákveðið að stytta frí sem hann er í og snúa aftur til Washington til þess að vera tilbúinn að undirrita lög sem kveða á um að halda eigi lífi í heiladauðri konu í Flórída. Miklar deilur hafa verið um málið í Bandaríkjunum en þar er tekist á um hvort hinni fjörutíu og eins ár Terri Schiavo skuli leyft að deyja eða hvort halda eigi henni á lífi. 20.3.2005 00:01
Enn einn Serbinn gefur sig fram Bosníu-Serbinn Vinko Pandurevic mun gefa sig fram við Stríðsglæpadómstólinn í Haag þar sem hann er ákærður fyrir þjóðarmorð. Frá þessu greindu yfirvöld í Belgrad í Serbíu í dag. Pandurevic flýgur til Haag á miðvikudag, en hann er áttundi Serbinn sem gefur sig fram við dómstólinn á síðustu tveimur mánuðum. 20.3.2005 00:01
Nýr meirihluti á Blönduósi "Viðræður okkar gengu eins í sögu og engin snurða hljóp á þráðinn," segir Ágúst Þór Bragason, nýráðinn formaður bæjarráðs Blönduóss, en myndaður hefur verið nýr meirihluti í bænum. Er þar um að ræða samstarf D-lista Sjálfsstæðismanna og H-lista vinstri manna og óháðra. 20.3.2005 00:01
Óttast mikil flóð í Austur-Evrópu Stjórnvöld í Tékklandi, Póllandi og austurhluta Þýskalands óttast að nokkur fljót flæði yfir bakka sína á næstu dögum vegna mikilla rigninga og bráðnandi snjóalaga. Flutningur fólks af hættusvæðum er þegar hafinn og óttast er að tveir unglingspiltar í Póllandi hafi þegar látið lífið vegna vatnavaxta. 20.3.2005 00:01
Dæmdur fyrir að skipuleggja árás Öryggisdómstóll í Jórdaníu dæmdi í dag jórdanska uppreisnarleiðtogann Abu Musab al-Zarqawi í 15 ára fangelsi fyrir að skipuleggja árás á sendiráð Jórdaníu í Bagdad í Írak. Dómurinn var kveðinn upp að al-Zarqawi fjarstöddum. 20.3.2005 00:01
Páfi messaði ekki á pálmasunnudag Í fyrsta sinn í 26 ár á páfastóli messaði Jóhannes Páll páfi ekki á pálmasunnudegi, en hann er enn að jafna sig eftir erfið veikindi sem herjuðu á hann í þessum og síðasta mánuði. 20.3.2005 00:01
Mannskæð átök í Kirgisistan Óttast er að allt að tíu manns hafi látist í átökum lögreglu og stuðningsmanna stjórnarandstöðunnar í fyrrverandi Sovétlýðveldinu Kirgisistan í dag. Stjórnarandstaðan sakar stjórnina um svindl í þingkosningum nýverið og hefur farið fram á að forseti landsins, Askar Akajev, segi af sér. 20.3.2005 00:01
Myrti lögreglustjóra í Írak Uppreisnarmaður í borginni Mósúl í Írak myrti í dag yfirmann spillingardeildar íröksku lögreglunnar í höfuðstöðvum hennar. Maðurinn gekk inn í höfuðstöðvarnar með sprengiefni um sig miðjan og sprengdi sig í loft upp með fyrrgreindum afleiðingum. 20.3.2005 00:01
Palestínumenn taka við Tulkarm Palestínumenn taka við öryggisgæslu af Ísraelum í borginni Tulkarm á Vesturbakkanum á morgun. Þetta sagði varnarmálaráðherra Ísraels, Shaul Mofaz, í dag. Palestínstínskar öryggsisveitir tóku við gæslu í borginni Jeríkó á miðvikudaginn var en alls munu þær taka við fimm borgum á Vesturbakkanum af ísraelskum hersveitum samkvæmt samkomulagi sem þjóðirnar gerðu í Egyptalandi í síðasta mánuði. 20.3.2005 00:01
Greiðfært um helstu vegi landsins Greiðfært er um helstu þjóðvegi landsins en þó er þungfært um Dynjandisheiði og hálka á Hrafnseyrarheiði. Hálkublettir eru á Eyrarfjalli og á Steingrímsfjarðarheiði. Á Norðurlandi er hálka á Lágheiði og á Austurlandi eru hálkublettir á Hellisheiði Eystri og á Breiðdalsheiði. Öxi er ófær. 20.3.2005 00:01
Kosningar fara fram 18. september Þingkosningum í Afganistan hefur verið frestað til 18. september og fara fram um leið og héraðskosningar í landinu. Frá þessu greindi formaður yfirkjörstjórnar fyrr í dag. Kosningarnar áttu upphaflega að fara fram í október síðastliðnum, um leið og forsetakosningarnar, en var frestað þar sem ekki var hægt að tryggja öryggi kjósenda. 20.3.2005 00:01
Tími kominn til aðgerða "Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir af þessu taginu koma eins og blaut tuska framan í almenning og að mínu mati er kominn tími til aðgerða," segir Helgi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri sælgætisverksmiðjunnar Góu-Lindu. 20.3.2005 00:01
Minkafrumvarp enn í smíðum Frumvarp sem Siv Friðleifsdóttir, fyrrverandi umhverfisráðherra, hafði í smíðum varðandi fækkun á minknum í íslenskri náttúru er enn í vinnslu undir handleiðslu nýs umhverfisráðherra, Sigríðar Önnu Þórðardóttur. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að leggja málið fram á Alþingi. 20.3.2005 00:01
Taugatitringur við Persaflóa Mikill taugatitringur er meðal Vesturlandabúa í Persaflóaríkjunum eftir að breskur maður lét lífið í sjálfsmorðsárás í Katar í morgun. Óttast er að hryðjuverkasamtökin al-Qaida standi á bak við árásina og að þetta sé aðeins byrjunin. 20.3.2005 00:01
Fleiri látnir í námuslysi í Kína Fimmtíu og níu námuverkamenn eru látnir og tíu er saknað eftir að sprengja reif í sundur námu í einu aðalnámuhéraði Kína seint í gær. Sprengingin varð í námu sem yfirvöld lokuðu á síðasta ári vegna þess að öryggismálum var ábótavant en eigendur námunnar höfðu opnað hana aftur í leyfisleysi. Þeir hafa nú verið handteknir. 20.3.2005 00:01
Bosníu-Serbi til Haag Vinko Pandurevic, sem var háttsettur hershöfðingi í her Bosníu-Serba í Bosníustríðinu 1992-1995, verður framseldur til stríðsglæpadómstólsins í Haag í vikunni, að því er yfirvöld í Serbíu greindu frá í gær. 20.3.2005 00:01
Handtökur í Madríd-tilræðismáli Breska lögreglan greindi frá því á laugardag að hún hefði handtekið mann sem var eftirlýstur á Spáni vegna gruns um að hafa verið viðriðinn lestarsprengjutilræðið í Madríd fyrir ári, sem kostaði 191 mann lífið. Spænska lögreglan handtók bróður hans á föstudag. Bræðurnir kváðu vera frá Sýrlandi. 20.3.2005 00:01
Kosið í Afganistan í haust Fyrstu þingkosningarnar sem fram fara í Afganistan frá því að talibanastjórninni þar var steypt fyrir þremur og hálfu ári verða haldnar 18. september næstkomandi. Þetta tilkynnti kjörstjórnin í gær. Kosningarnar eru mikilvægur áfangi í átt að lýðræði og stöðugleika í landinu eftir aldarfjórðungs upplausn og borgarastríð. 20.3.2005 00:01
Íraksstríð upphaf lýðræðisbylgju? Stríðið í Írak var frá upphafi umdeilt og alþjóðlegar deilur um réttmæti þess hafa staðið undanfarin tvö ár eða svo. En nú er svo komið að jafnvel hörðustu gagnrýnendur stríðsrekstursins hugsa sitt mál og velta því óhugsanlega fyrir sér hvort stríði hafi verið besta mál. Ástæða þessara vangaveltna eru atburðir undanfarinna vikna, frá kosningunum í Írak í lok janúar. 20.3.2005 00:01