Innlent

Mættu heim til lög­reglu­manns og ógnuðu honum með hníf

Agnar Már Másson skrifar
Sérsveitin er sögð hafa aðstoðað lögregluna á höfuðborgarsvæðina við handtökuna.
Sérsveitin er sögð hafa aðstoðað lögregluna á höfuðborgarsvæðina við handtökuna. Vísir/Vilhelm

Fjórir menn eru sagðir hafa verið handteknir fyrir að mæta á heimili lögreglumanns í fyrrinótt og hóta honum með hníf. Héraðssaksóknari segist hafa „atvik sem beindust að lögreglumönnum“ til rannsóknar.

Rúv hefur eftir heimildum sínum að fjórir menn hafi verið handteknir af lögreglu og sérsveit í aðfaranótt mánudags þar sem þeir hafi verið grunaðir um að hafa mætt vopnaðir á heimili lögreglumanns og hótað honum.

„Við erum með mál til rannsóknar er varðar atvik sem beindust að lögreglumanni,“ segir Ólafur Þór Haukssón héraðssaksóknari í samtali við fréttastofu en hann kvaðst ekki geta tjáð sig frekar um málið. 

Ríkismiðillin segir að mennirnir hafi verið handteknir á tveimur stöðum vegna málsins. Þeir hafi haft í hótunum við lögreglumanninn um nokkurt skeið en um mætt á heimili hans og ógnað honum með hníf. Þó sé ekki er vitað til þess að mennirnir hafi beitt vopnum.

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu kvaðst ekkert getað tjáð sig um málið og vísaði á héraðssaksóknara þegar blaðamaður hafði samband.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×