Fótbolti

Einkunnir Íslands: Vindurinn bestur gegn Belgum

Íþróttadeild Vísis skrifar
Íslenska liðið fagnar Birki Má Sævarssyni sem skoraði mark liðsins gegn Belgum í kvöld.
Íslenska liðið fagnar Birki Má Sævarssyni sem skoraði mark liðsins gegn Belgum í kvöld. AP/Brynjar Gunnarsson

Birkir Már Sævarsson, eða „Vindurinn“, fékk hæstu einkunn íslensku leikmannanna í 2-1 tapinu gegn Belgíu í kvöld.

Íslenska liðið réði illa við markamaskínuna Romelu Lukaku sem skoraði bæði mörk Belga en það var Birkir sem að jafnaði metin í fyrri hálfleiknum.

Ísland var án margra fastamanna í kvöld vegna meiðsla og af öðrum ástæðum en þar með gafst tækifæri fyrir aðra til að láta ljós sitt skína, í síðasta leiknum fyrir úrslitaleikinn við Ungverjaland 12. nóvember, um sæti á EM.

Að neðan má sjá einkunnir íslensku leikmannanna vegna leiksins við Belgíu.

Rúnar Alex Rúnarsson, markvörður 6

Átti ekki möguleika í skot Lukaku í fyrsta marki leiksins og giskaði á rangt horn í vítinu. Fékk annars ekki mörg tækifæri til að verja en greip vel inn í fyrirgjafir og var öruggur þegar hann þurfti að taka við sendingum.

Birkir Már Sævarsson, hægri bakvörður 8

Mikið á ferðinni í vængbakvarðarstöðunni og skoraði laglegt mark eftir að hafa geyst eins og vindurinn í gegnum vörn Belga. Varðist sjálfur vel og engin tilviljun að Belgar komust lítt áleiðis á vinstri kantinum.

Sverrir Ingi Ingason, miðvörður 7

Greip vel inn í þegar boltinn kom inn á hans svæði og virtist helst geta ráðið við Lukaku. Komst best frá sínu af miðvörðunum þremur í nýja kerfinu og veikti að minnsta kosti ekki stöðu sína í baráttunni um byrjunarliðssæti.

Hólmar Örn Eyjólfsson, miðvörður 4

Átti í miklum erfiðleikum gegn hinum nautsterka Lukaku í fyrri hálfleik. Náði ekkert að trufla hann í fyrsta marki leiksins og renndi sér klaufalega í hann þegar vítið var dæmt sem Lukaku skoraði úr. Stóð sig ágætlega í seinni hálfleiknum.

Hörður Björgvin Magnússon, miðvörður 5

Fékk boltann óheppilega í sig í fyrsta marki leiksins. Virtist ekki tengja nægilega vel saman við Ara og Hólmar, og naut sín ekki sérlega vel þrátt fyrir að vera í hlutverki sem hann er þaulvanur í Rússlandi.

Ari Freyr Skúlason, vinstri bakvörður 5

Komst lítið í takt við leikinn í vængbakvarðarstöðunni, sem þó hefði mátt ætla að hentaði Ara og hans sendingagetu vel. Skilaði varnarvinnunni ágætlega en Belgar komust betur áleiðis á hægri kantinum.

Guðlaugur Victor Pálsson, miðjumaður 7

Harður í návígum, með mikla yfirferð og mjög baráttuglaður sem fyrr en hefði stundum mátt staðsetja sig betur og binda varnarleikinn betur saman.

Rúnar Már Sigurjónsson, miðjumaður 6

Eldfljótur að hugsa og átti magnaða stoðsendingu þegar Ísland jafnaði í 1-1. Tók annars lítinn þátt í spilinu hjá íslenska liðinu en hljóp mikið og sinnti sínu varnarhlutverki.

Birkir Bjarnason (Fyrirliði), miðjumaður 6

Hæfilega afslappaður, reyndi alltaf að halda í boltann og koma honum skynsamlega frá sér, og gerði það vel. Minna sjáanlegur í seinni hálfleiknum í sínum þriðja leik á einni viku.

Albert Guðmundsson, framherji 6

Óhræddur við að halda boltanum, gerði það mjög vel og skilaði honum oftast vel frá sér. Náði þó lítið að búa til á fremsta þriðjungi vallarins enda fá tækifæri til þess.

Jón Daði Böðvarsson, framherji 5

Vinnusamur sem fyrr og tók virkan þátt í varnarleiknum en náði lítið sem ekkert að ógna fram á við. Hraðinn dugði skammt gegn fljótum varnarmönnum Belgíu.

Varamenn:

Jón Dagur Þorsteinsson kom inn á fyrir Rúnar Má Sigurjónsson á 69. mínútu 4

Náði ekki að stimpla sig inn í leikinn að ráði. Hleypti Belgum í hættulegt færi undir lokin.

Viðar Örn Kjartansson kom inn á fyrir Jón Daða Böðvarsson á 69. mínútu 5

Sást lítið og náði ekki að nýta þann stutta tíma sem hann fékk í þessari landsleikjatörn.

Kolbeinn Sigþórsson kom inn á fyrir Albert Guðmundsson á 82. mínútu -

Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Hjörtur Hermannsson kom inn á fyrir Guðlaug Victor Pálsson á 82. mínútu -

Spilaði of lítið til að fá einkunn.

Arnór Ingvi Traustason kom inn á fyrir Hörð Björgvin Magnússon á 86. mínútu -

Spilaði of lítið til að fá einkunn.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×