Sport

Haltrandi tengda­sonur leiddi Höfðingjana í Super Bowl

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Kansas City Chiefs maðurinn Patrick Mahomes fagnar sigri með dóttur sinni Sterling Skye Mahomes eftir sigurinn á Cincinnati Bengals í nótt.
Kansas City Chiefs maðurinn Patrick Mahomes fagnar sigri með dóttur sinni Sterling Skye Mahomes eftir sigurinn á Cincinnati Bengals í nótt. Getty/Kevin C. Cox

Kansas City Chiefs og Philadelphia Eagles spila í Super Bowl í NFL deildinni í ár en það var ljóst eftir að liðin unnu úrslitaleiki deildanna í gær og nótt.

Chiefs tryggði sér sæti sæti í Super Bowl í þriðja sinn á fjórum árum eftir 23-20 sigur á Cincinnati Bengals í úrslitaleik Ameríkudeildarinnar.

Tengdasonur Mosfellsbæjar, Patrick Mahomes, sýndi mikinn andlega styrk og vilja með því að leiða lið sitt í gegnum þennan leik því hann var illa tognaður á ökkla eftir leikinn um síðustu helgi.

Mahomes náði að kasta fyrir tveimur snertimörkum á meðan fullfrískur kollegi hans hinum megin, Joe Burrow, kastaði boltanum tvisvar frá sér í leiknum. Bengals vann þennan leik á sama tíma í fyrra en nú var komið að Chiefs að fagna sigri.

Sparkarinn Harrison Butker tryggði Chiefs sigurinn með 45 jarda vallarmarki en áður hafði Mahomes sýndi mikinn styrk með því að hlaupa haltrandi með boltann og fiska fimmtán jarda víti að auki. Það munaði öllu í að skapa Butker betra vallarmarksfæri.

Mótherji Höfðingjanna verður Philadelphia Eagles sem vann 31-7 sigur á San Francisco 49ers í úrslitaleik Þjóðardeildarinnar.

Eagles-liðið hefur verið á miklu flugi í allan vetur og hlaupaleikurinn afar öflugur með leikstjórnandann Jalen Hurts í fararbroddi. Hurts skoraði eitt af fjórum snertimörkunum sem Ernirnir hlupu með í gegnum 49ers vörnina.

Stærsta saga leiksins verður þó örugglega ótrúleg meiðslavandræði leikstjórnenda San Francisco 49ers liðsins.

Leikstjórnenda ólukka 49ers hélt nefnilega áfram en nú í öðru veldi. 49ers höfðu þegar missti tvo leikstjórnenda í meiðsli á leiktíðinni og þeir misstu tvo til viðbótar meidda af velli í gær. Á endanum varð annar þeirra að spila án þess að geta kastað og útkoman var ekki glæsileg.

Þessi úrslit þýða jafnframt að bræðurnir Travis Kelce og Jason Kelce mætast í Super Bowl en það hefur ekki gerst áður. Travis er innherji Chiefs liðsins en Jason er senter Eagles-liðsins. Þeir spila því báðir sókn og mætast því ekki bókstaflega inn á vellinum.

Super Bowl leikur Kansas City Chiefs og Philadelphia Eagles fer fram eftir tæpar tvær vikur eða sunnudaginn 12. febrúar.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×