Innlent

Réðst á konu með öxi fyrir framan grunn­skóla

Margrét Björk Jónsdóttir skrifar
Árásin fór fram fyrir framan Dalskóla í Úlfársdal. Heimildir fréttastofu herma að konan hafi verið að sækja börnin sín í skólann þegar árásin átti sér stað.
Árásin fór fram fyrir framan Dalskóla í Úlfársdal. Heimildir fréttastofu herma að konan hafi verið að sækja börnin sín í skólann þegar árásin átti sér stað. Dalskóli

Maður réðst á fyrrverandi konu sína með öxi fyrir framan Dalskóla seinni partinn í gær. Mörg vitni urðu að árásinni, þar á meðal börn. Konan var flutt á spítala, talsvert slösuð en er ekki talin í lífshættu. Lögreglan hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir manninum.

Margeir Sveinsson staðfestir í samtali við fréttastofu að öxi hafi verið beitt við árásina. Hann segist ekki hafa nákvæmar upplýsingar um líðan konunnar en telur að hún sé ekki í lífshættu. Hann segir lögregluna hafa óskað eftir gæsluvarðhaldi yfir manninum.

Lögregla var með mikinn viðbúnað við Dalskóla í gær. Fjölmörg vitni voru að árásinni.Vísir/Vilhelm

Sögusagnir um skotárás fóru á flug

Skólastjóri Dalskóla, Helena Katrín Hjaltadóttir, vildi ekki tjá sig um málið þegar fréttastofa hafði samband vegna málsins og vísaði í tölvupóst sem hún sendi foreldrum fyrr í dag.

Í póstinum, sem fréttastofa hefur undir höndum segir meðal annars:

„Kæru foreldrar og forráðamenn.

Nú er ljóst að atvik sem átti sér stað framan við Dalskóla seinni partinn i gær, beindist ekki gegn nemendum, starfsfólki eda skólanum sjálfum.

Lögregla telur að um einangrað tilvik sé að ræða og er ekki talin hætta á ferðum. Vegna sögusagna viljum við árétta að ekki var um skotárás að ræða.

Starfsfólk Úlfabyggðar brást hárrétt við í flóknum aðstæðum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Við munum, eins og ávallt, gera allt til að tryggja öryggi nemenda okkar.

Atvikið snertir tvö börn í skólanum og viljum við biðja foreldra að sýna nærgætni í umræðu um málið.“

Þá tekur hún fram að all nokkrir foreldrar og börn hafi orðið vitni að atvikinu. Verður boðið upp á samtal við skólasálfræðing og félagsráðgjafa í skólanum á morgun fyrir þá foreldra sem vilja nýta sér það.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×