Lífið

Laddi fær hjartastein í Hafnarfirði

Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar
Nánasta fjölskylda og vinir Ladda voru viðstödd afhjúpun hjartasteinsins við lauflétta athöfn og ljúfan barnasöng fyrr í kvöld
Nánasta fjölskylda og vinir Ladda voru viðstödd afhjúpun hjartasteinsins við lauflétta athöfn og ljúfan barnasöng fyrr í kvöld Bæjarbíó

„Þetta er einn af hápunktunum, allavega hæsti punkturinn hingað til myndi ég segja,“ segir Þórhallur Sigurðsson, skemmtikraftur, betur þekktur sem Laddi. Svokallaður hjartasteinn til heiðurs Ladda var afhjúpaður fyrir framan Bæjarbíó í Hafnarfirði fyrr í kvöld og fréttastofa Stöðvar 2 var að sjálfsögðu á staðnum. Hjartasteininn hlýtur Laddi fyrir leikinn, gleðina og skemmtunina sem hann hefur fært öllum aldurshópum um árabil.

Laddi er landsmönnum flestum að góðu kunnur og þá ekki síst fyrir sköpun sína á fjöldanum öllum af karakterum sem margir kannast við. Eiríkur Fjalar, Saxi læknir, Skúli rafvirki, Magnús bóndi, Elsa Lund og Marteinn Mosdal eru meðal þessara karaktera og vilja margir meina að einhverjir þeirra séu fæddir í brandarabænum Hafnarfirði líkt og Laddi sjálfur.

Þá hefur Laddi gefið út plötur, leikið í kvikmyndum og tekið þátt sem handritshöfundur og/eða leikari í áramótaskaupum og fjölda þátta sem yljað hafa andann og glatt hafa landann um áratuga skeið. Hann hefur einnig talsett mikinn fjölda kvikmynda og teiknimynda og afrekaði það m.a. að talsetja allar teiknimyndirnar um Strumpana einn síns liðs líkt og fram kemur í tilkynningu frá Bæjarbíó.

Lillý Valgerður Pétursdóttir fréttamaður Stöðvar 2 var á staðnum þegar hjartasteininn var vígður og spjallaði við Ladda.

„Þetta er mikill heiður myndi ég segja, að vera hérna á stéttinni fyrir framan Bæjarbíó. Gamla bíóið mitt. Ég var alltaf hérna þegar ég var krakki,“ sagði Laddi en eins og margir vita er hann fæddur og uppalinn í Hafnarfirðinum.

Aðspurður segist hann þó ekki beinlínis hafa sótt mikið af karakterum í heimabæinn. Einn maður úr bæjarlífinu, Baldur Magister veitti Ladda þó innblástur þegar hann skapaði Hallgrím hvítlaukskokk sem birtist landsmönnum fyrst á skjánum í Heilsubælinu.

Hjartasteinninn er sá þriðji fyrir framan Bæjarbíó en fyrir eru steinar tileinkaðir tónlistarmanninum Björgvini Halldórssyni og Guðrúnu Helgadóttur rithöfundi.

„Þetta er ekki amalegur hópur sem maður er með í. Þetta eru aðal hafnfirðingarnir,“ segir Laddi sem nú er orðinn 75 ára og segir margt standa upp úr í gegnum tíðina.

„Og það er ekki allt búið.“


Tengdar fréttir

Laddi fór á kostum á trommunum

Í Glaumbæ á föstudaginn mættu þeir Magni Ásgeirsson og Laddi í myndver og léku á als oddi. Magni er þekktur fyrir það að taka ábreiður af vinsælum lögum og Laddi er nokkuð liðtækur trommari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×