Innlent

Ís­­lendingar hafi alltaf fyrir­­litið sinn rétta uppruna

Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar
Þorvaldur Friðriksson hefur lengi rannsakað keltnesk áhrif á Íslandi, sérstaklega á hin ýmsu örnefni sem finnast víða um land og eru illskiljanleg þegar keltneskt samhengi er ekki fyrir hendi.
Þorvaldur Friðriksson hefur lengi rannsakað keltnesk áhrif á Íslandi, sérstaklega á hin ýmsu örnefni sem finnast víða um land og eru illskiljanleg þegar keltneskt samhengi er ekki fyrir hendi. vísir/egill

Sterkar vísbendingar eru um að gelíska hafi verið útbreitt mál á Íslandi við landnám og að málskipti hafi orðið á landinu skömmu síðar. Þetta er mat eins helsta sérfræðings landsins í sögu Kelta sem bendir á gríðarlegan mun á íslensku og hinum norðurlandamálunum.

Belja, ær, ýsa, hurð, spýta og strákur. Allt dæmi um orð sem fræðimaðurinn Þorvaldur Friðriksson hefur tekið sem dæmi yfir orð í íslensku sem finnast ekki í öðrum norðurlandamálum.

Örfá dæmi yfir mörg hundruð orð sem Þorvaldur tekur til í bók sinni og rekur til gelísku.vísir/rúnar

Og uppruna þeirra rekur hann til gelísku. 

Í glænýrri bók sem Þorvaldur gaf út fer hann yfir hundruð orða í íslenskri tungu sem hann telur gelísk að uppruna.

Einnig einhver helstu örnefni okkar eins og Esjuna, Faxaflóa og Geysi svo eitthvað sé nefnt.

„Þetta eru allt mjög mikilvæg örnefni. Og ef þetta er rétt, sem ég tel að sé, að þau séu gelísk, þá hlýtur að hafa verið töluð hér gelíska. Og það er nýbreytni að því sé haldið fram,“ segir Þorvaldur þegar við settumst niður með honum til að ræða nýju bókina. 

Þorvaldur segir Íslendinga ávallt hafa verið stoltir af því að vera afkomendur norskra smákonunga en fyrirlitið það að vera komnir af írskum þrælum.vísir/einar

Og hann nefnir fleiri veigamikil atriði kenningu sinni til stuðnings. Til dæmis íslenskan framburð sem hann segir mun frekar svipa til gelísks framburðar en norræns. Í íslensku er aðblásturshljóð sem ekki finnst í norrænum málum. Til dæmis í orði eins og epli - í íslensku heyrist h á eftir fyrsta hljóðinu e(h)pli á meðan framburðurinn er mun mýkri hjá Dönum, Svíum og Norðmönnum. Einnig er áhersla á fyrsta atkvæði orða í íslensku. 

„Þetta þarf að rannsaka og þetta gæti bent til málskipta. Og því hefur ekki verið haldið fram svo ég viti,“ segir Þorvaldur. 

Þorvaldur segir fræðimenn lengi hafa afneitað þeirri staðreynd að margt í okkar menningu sé gelískt að uppruna. Nú sé hins vegar búið að sanna með erfðafræðirannsóknum að gríðarstór hluti landnemanna hafi verið gelískur.

„Allt frá landnámi og allt fram á okkar daga þá hafa Íslendingar verið stoltir af því að vera afkomendur norskra smákonunga og fyrirlitið það að vera afkomendur írskra þræla eins og það er kallað,“ segir Þorvaldur.

„Íslendingar eru sem sagt menningarblanda. Og það eru engir kynþáttafordómar í þessu. En hins vegar er það mjög mikilvægt að lyfta fram þessari miklu menningu sem við höfum erft frá þessum keltnesku þjóðum.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×