Innlent

Mál föður ríkis­lög­reglu­stjóra „ó­þægi­legt“ og veki upp margar spurningar

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Sigmar Guðmundsson segir mál föður ríkislögreglustjóra óheppilegt og vekja upp spurningar.
Sigmar Guðmundsson segir mál föður ríkislögreglustjóra óheppilegt og vekja upp spurningar. Vísir/Steingrímur Dúi

Þingmaður Viðreisnar segir meinta ólöglega vopnasölu föður ríkislögreglustjóra og takmarkaða rannsókn lögreglu á henni mjög óþægilega. Efla þurfi eftirlit með störfum lögreglu svo traust almennings á henni rýrni ekki.

Guðjón Valdimarsson, faðir Sigríðar Bjarkar ríkislögreglustjóra, hefur verið til umfjöllunar fjölmiðla undanfarna daga vegna meintrar sölu hans á ólöglegum og hálfsjálfvirkum vopnum.

„Þetta er auðvitað mjög óþægilegt að þetta skuli vera svona nátengt ríkislögreglustjóra og mjög óþægilegt að það skuli ekki vera eitthvað ferli fyrir okkur til að rannsaka þetta almennilega. Við höfum heyrt það hjá dómsmálaráðherra að hann vilji skoða málið en ég spyr, hver á að skoða það?“ spyr Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar og fulltrúi í Allsherjar- og menntamálanefnd. 

Málið fært til annars embættis tuttugu dögum eftir að nafn Guðjóns kom upp

Maður var í ársbyrjun 2021 dæmdur í Landsrétti fyrir að eiga breyttan hálfsjálfvirkan riffil, sem hann keypti af Guðjóni.

Fram kemur í lögregluskýrslu að maðurinn hafi strax við húsleit, 26. júní 2018, nefnt Guðjón og sakað hann um að hafa breytt vopninu. 

Það var þó ekki fyrr en rúmum tveimur vikum síðar, 12. júlí 2018, sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tilkynnti ríkissaksóknara um tengsl Sigríðar Bjarkar, sem þá var lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu. Fjórum dögum síðar var málið fært yfir til lögreglunnar á Vesturlandi en Guðjón hafði stöðu vitnis í málinu.

„Það vekur líka athygli hversu langur tími líður frá því að málið kemur upp og þangað til embættið vísar málinu annað út af vanhæfi. Það eru alls konar svona spurningar á kreiki í þessu máli sem við verðum að fá svör við,“ segir Sigmar. 

Málið verði rætt af Allsherjar- og menntamálanefnd

Mál sem þetta veki upp spurningar.

„Hvort sem að lögreglan hafi gert eitthvað af sér eða ekki varpar vafa á þetta allt saman og því þarf að leiða þetta til lykta.“

Óljóst sé hver eigi að rannsaka málið en vel komi til greina að málið fari fyrir Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis.

„Að minnsta kosti að ræða það innan nefndarinnar hvort að það þurfi að bregðast eitthvað við á þeim vettvangi,“ segir Sigmar. 

„Við verðum bara að eyða óvissunni um þessi mál, bæði um það hvernig eftirliti með lögreglu eigi að vera háttað og svo um þetta mál sem hefur verið í umfjöllun fjölmiðla og varðar föður ríkislögreglustjóra.“


Tengdar fréttir

Ekkert bendi til að föður Sig­ríðar hafi verið hlíft af lög­reglunni

Dómsmálaráðherra segir ekkert benda til að föður ríkislögreglustjóra hafi verið hlíft af lögreglu eftir að hann var sakaður um að hafa selt ólögleg skotvopn. Samkvæmt dómsgögnum voru vopnin hvorki skoðuð né upprunavottorð afhent lögreglu þegar hún skráði vopnin á sínum tíma.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×