Viðskipti innlent

Rannsóknin sé ítarleg og muni taka af allan vafa

Heimir Már Pétursson og Kolbeinn Tumi Daðason skrifa
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á von á niðurstöðu á næstu vikum, allavega fyrir áramót.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri á von á niðurstöðu á næstu vikum, allavega fyrir áramót. Vísir/Vilhelm

Seðlabankastjóri segir að rannsókn Fjármálaeftirlits bankans á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka muni taka af allan vafa hvort innherjaupplýsingar hafi verið nýttar í tengslum við yfirvofandi útboð bankans. Allir þættir málsins verði skoðaðir.

Innherji á Vísi greindi frá því í morgun að Fjármálaeftirlitið hefði meðal annars til skoðunar óeðlileg viðskipti á hlutabréfamarkaði yfir tveggja daga tímabil áður en útboðið kláraðist. Söluráðgjafar hefðu verið krafðir um ítarleg gögn um samskipti þeirra við viðskiptavini 21. og 22. mars síðastliðinn. Óskað var eftir afriti og upptökum af öllum símtölum, tölvupóstssamskiptum og SMS-skilaboðum starfsmanna til fjárfesta þessa daga.

Grein Innherja má lesa hér að neðan. Innherji er opinn öllum til 31. október en þó þarf að skrá sig sem notenda.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að um leið og athugun hófst á útboði Bankasýslunnar á hlutum í Íslandsbanka hefði Fjármálaeftirlit Seðlabankans ákveðið að fara nákvæmlega í málið.

„Það sem við höfum verið að gera síðustu mánuði er mjög víðtæk athugun eða rannsókn á því sem fór fram. Við ætlum að ná og taka fyrir alla anga málsins. Þetta er einn af þeim öngum sem við erum að skoða,“ segir Ásgeir.

Viðmælendur Innherja telja ljóst að tilgangur með ítarlegri gagnabeiðni Fjármálaeftirlitsins sé að kanna hvort einhver viðskipti með skráð hlutabréf í Kauphöllinni þessa daga kunni að hafa verið á grundvelli innherjaupplýsinga í tengslum við útboðið.

„Þar komi ekki aðeins til greina viðskipti með bréf í Íslandsbanka sjálfum heldur mögulega í öðrum félögum þar sem fjárfestar hafi viljað selja hlutabréf í því skyni að losa um fjármuni til að eiga til ráðstöfunar þegar útboð bankans hæfist,“ segir í grein Innherja.

Ásgeir segir að verið sé að skoða alla þætti málsins en hann geti ekki farið í einstaka þætti.

„Það er það verkefni sem við lögðum af stað með. Svo það lægi skýrt fyrir að þeir kæmu allir í ljós. Það að hefja athugun er ekki sönnun á sekt eða neitt slíkt. Bara að skoða allan grun.“

Von sé á niðurstöðu fljótlega, örugglega fyrir áramót, en hann geti ekki sagt fyrir um nákvæma tímasetningu.

„Við höfum farið í mjög ítarlega skoðun.“

Aðspurður hvort hann sé vongóður um að hægt verði að rekja alla ferla og taka af allan vafa þegar uppi verður staðið segir Ásgeir: „Algjörlega“.


Tengdar fréttir

Rann­sakar hluta­bréfa­við­skipti dagana fyrir út­boð Ís­lands­banka

Rannsókn Fjármálaeftirlits Seðlabanka Íslands á starfsháttum ráðgjafa fjármálafyrirtækja við sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka fyrr á árinu beinist meðal annars að mögulega óeðlilegum viðskiptum á hlutabréfamarkaði yfir tveggja daga tímabil áður en útboðið kláraðist. Eftirlitið hefur kallað eftir ítarlegum gögnum frá söluráðgjöfunum um samskipti þeirra við viðskiptavini sína dagana 21. og 22. mars síðastliðinn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×