Bílar

Ford frestar afhendingu 45.000 F-150 bíla vegna merkjavanda

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ford F-150 pallbíllinn með bláa Ford-merkinu.
Ford F-150 pallbíllinn með bláa Ford-merkinu.

Birgjar Ford hafa brugðist þegar kemur að afhendingu Ford-merkja á bíla framleiðandans. Það er skortur á bæði hinu fræga sporöskjulaga bláa Ford-merki sem og tengunda merkjum. Af þessum sökum hefur framleiðandinn frestað afhendingu um 45.000 bíla vegna skortsins.

Ford hefur neitað að tjá sig um hvort skortur á Ford-merkjum sé að valda seinkunum. En það er staðan samkvæmt heimildum Wall Street Journal.

Stjórnendur Ford hafa íhugað aðra möguleika, til að mynda að þrívíddarprenta merki. Um tímabundna lausn væri að ræða þar til merkin taka að berast Ford. En að sögn heimildarmanna Wall Street Journal eru prentuð merki ekki af nægjanlegum gæðum til að nota.

Fyrirtækið sem framleiðir merkin fyrir Ford heitir Tribar og er staðsett í Wixon, úthverfi Detroit. Tribar þjónustar fleiri stóra framleiðendur, þar á meðal Toyota.

Tribar lenti í vandræðum í lok júlí þegar fyrirtækið mengaði vatnið í nágrenni verksmiðjunnar með 5% sexgiltu krómi, sem er þekktur krabbameinsvaldur. Starfsmaður Tribar slökkti á viðvörunarbjöllum 460 sinnum á þriggja klukkustunda tímabili. Mengunin náði til miðbæjar Detroit yfir hásumarið. Íbúum svæðisins var gert að forðast að svæðið sem mengunin náði til.

Verksmiðja Tribar er aftur kominn á fullt eftir að brugðist var við menguninni. Tribar hefur staðfest að Ford er meðal viðskiptavina sinna. Hins vegar hefur Tribar ekkert gefið upp um hverslags verkefni það vinnur fyrir Ford. Málið er hið grunsamlegasta.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×