Innlent

Ekki á dag­skrá að sjá hjól- og felli­hýsa­eig­endum fyrir geymslu­plássi á sumrin

Atli Ísleifsson skrifar
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram fyrirspurn um málið í umhverfis- og skipulagsráði.
Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins, lagði fram fyrirspurn um málið í umhverfis- og skipulagsráði. Vísir/Vilhelm

Ekki er á dagskrá Reykjavíkurborgar að útvega eigendum hjól- og fellihýsa sérstakt geymslupláss fyrir farartækin yfir sumartímann.

Þetta kemur fram í bókun meirihluta borgarfulltrúa í umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkur vegna fyrirspurnar Kolbrúnar Baldursdóttur, áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins, í ráðinu. Fyrirspurninni var vísað frá.

Í fyrirspurn Kolbrúnar, sem lögð var fram í síðasta mánuði, segir að í Kópavogi og Hafnarfirði hafi bæjaryfirvöld boðið íbúum að geyma hjól- og fellihýsin á svæðum í eigu sveitarfélaganna sem séu illa nýtt. „Þetta gæti t.d. verið skólalóð á þeim tíma sem skólar eru í sumarfríi eða við íþróttamannvirki,“ segir Kolbrún.

Áfram segir í fyrirspurninni að mikil fjölgun hafi orðið á hjól- og fellihýsum og að margir íbúar borgarinnar kjósi að eiga slík hýsi. Því sé eðlilegt að Reykjavíkurborg hugi að þessum hópi og kanni hvort að ekki megi þjónusta hann. 

„Ljóst er að þessi hópur er á hrakhólum í dag og spurning hvort að borgin eigi því ekki að koma að þessu,“ segir Kolbrún sem spyr svo hver stefna borgarinnar sé í þessum málum.

Eðlilegt að þau séu geymd heima eða leigð pláss

Í svari meirihluta fulltrúa á fundi ráðsins, sem haldinn var í gær, segir að það sé ekki stefna borgarinnar að sjá íbúum fyrir bílastæðum í borgarlandi undir farartæki sem fyrst og fremst séu ætluð til tómstundaiðkunar og standi gjarnan óhreyfð löngum stundum.

„Það getur ekki talist óeðlilegt að þau sem vilja eiga hjól- og fellihýsi geri ráð fyrir geymsluplássi fyrir þau á sínum lóðum eða leigi slíkt pláss af öðrum,“ segir í bókuninni.

„Svo mörg voru þau orð“

Kolbrún segir í sinni bókun að ljóst sé af svarinu að skipulagsyfirvöld í Reykjavík hafi ekki áhuga á að þjónusta þennan hóp. 

„Svo mörg voru þau orð,“ segir í lok bókunarinnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×