Innlent

Eldur í hraðbanka á Bíldshöfða í nótt

Ellen Geirsdóttir Håkansson skrifar
Lögreglan mætti á undan slökkviliði og slökkti eldinn með slökkvutæki úr bifreið sinni.
Lögreglan mætti á undan slökkviliði og slökkti eldinn með slökkvutæki úr bifreið sinni. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en frá klukkan 17:00 til 05:00 í morgun hefur lögreglan sinnt 64 málum. 

Á fjórða tímanum í nótt var tilkynnt um eld í hraðbanka í Árbæ, nánar til tekið í verslunarhúsnæði á Bíldshöfða.  Lögreglan mætti á undan slökkviliði og slökkti eldinn með slökkvutæki úr bifreið sinni. Þegar slökkvilið kom á vettvang var notuð hitamyndavél til þess að tryggja að lögregla hafi sinnt slökkvistörfum með fullnægjandi hætti. 

Það tók slökkvilið tæpa þrjá klukkutíma að reykræsta húsið en töluverður reykur var í verslunarhúsnæðinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×