Innlent

Telja að bak­slag hafi orðið í réttinda­bar­áttu hin­segin fólks

Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður og Ingileif Friðriksdóttir stofnandi Hinseginsleikans á Austurvelli í dag.
Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður og Ingileif Friðriksdóttir stofnandi Hinseginsleikans á Austurvelli í dag. Vísir/Berghildur

Sýnileikinn er sterkasta vopnið var yfirskrift samstöðufundar hinsegin fólks vegna hryðjuverkaárásarinnar í Osló sem haldinn var á Austurvelli í dag. Talsmenn fundarins telja að bakslag hafi orðið í réttindabaráttu hinsegin fólks.

Fundurinn hófst með mínútu þögn af virðingu við fórnarlöm árásarinnar í Osló þar sem tveir létust og 21 særðist.

„Við erum að hingað komin til að sýna frændum okkar í Noregi samstöðu og samhug í verki vegna þessa hræðilega atburðar í Osló,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður.

Páll söng nokkur lög á fundinum meðal annars hið sívinsæla dag Allt fyrir ástina. 

„Út með hatrið, inn með ástina, þótt ég verði að syngja þetta lag, þótt ég verði 86 ára gömul drottning upp á einhverjum trukk þá bara réttu mér míkrafón. Það er nefnilega auðséð á þessum atburði í síðustu viku að þessi barátta milli haturs og kærleika og fáfræði og kunnáttu lýkur aldrei,“ segir Páll.  

Ingileif Friðriksdóttir stofnandi Hinseginleikans telur að bakslag hafi orðið í réttindabaráttu hinsegin fólks. 

„Því miður hefur orðið rosalegt bakslag, ekki bara í Bandaríkjunum eða í Evrópu heldur líka hér heima. Við höfum séð það gegnum samfélagsmiðla og víðar. Þetta er m.a. að ná til ungmenna sem eru að verða fyrir ofbeldi. Þetta er að verða mjög alvarlegt og við sjáum hvað þetta er nálægt okkur,“ segir Ingileif. 

Krafan er að fræðsla um réttindi hinsegin fólks verði efld. 

„Við krefjumst þess að hinsegin fræðsla verði efld á öllum stigum samfélagsins. Í skólum, hjá sveitarfélögum og stjórnvöldum. Því við vitum að fordómar byggjast fyrst og fremst á fáfræði,“ segir Ingileif. 


Tengdar fréttir

Þúsundir söfnuðust saman í Osló þvert á tilmæli lögreglu

Þúsundir hunsuðu viðvaranir lögreglu í Osló í gær og komu saman við ráðhús borgarinnar til að mótmæla ofbeldi gegn hinsegin fólki og til að minnast þeirra sem létust í hryðjuverkaárás við hinsegin skemmtistað á laugardag.

Rann­saka skot­á­rásina í Osló sem mögu­legt hryðju­verk

Norska lögreglan segist rannsaka hvort að mannskæð skotárás við skemmtistað hinsegin fólks í miðborg Oslóar í nótt hafi verið hryðjuverkaárás. Gleðigöngu Oslóar sem átti að fara fram í dag hefur verið aflýst vegna árásarinnar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×