Erlent

Fundur G7 ríkjanna: Selenskí vill stöðva átökin fyrir veturinn

Ólafur Björn Sverrisson skrifar
Frá G7 fundinum.
Frá G7 fundinum. AP

Vólódímír Selenskí, Úkraínuforseti biðlar til leiðtoga G7 ríkjanna að stöðva átökin í Úkraínu áður en vetur skellur á. 

Leiðtogafundur G7 ríkjanna hófst í gær í Krün í Þýskalandi. Þar hittust leiðtogar Kanada, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Japans og Bretlands og var stríðið í Úkraínu eðlilega efst á baugi.  

Heita Úkraínu stuðning svo lengi sem stríðið varir 

Ríkin sendu í dag frá sér yfirlýsingu þar sem þau heita því að standa með Úkraínu eins lengi og þörf krefur og veita Úkraínumönnum áfram efnahagslegan og hernaðarlegan stuðning, meðal annars.

Í yfirlýsingunni eru Rússar fordæmdir fyrir að ýja að notkun kjarnorkuvopna og Úkraínumenn sagðir þurfa að ákveða sjálfir skilmála mögulegs friðarsamkomulags, án utanaðkomandi þrýstings.

Olaf Scholz ávarpar blaðamenn í fallegri náttúru í Krün við rætur alpanna í Þýskalandi.

Þá lýsa leiðtogarnir yfir áhyggjum vegna yfirlýsinga Rússa um mögulega uppsetningu eldflauga í Hvíta-Rússlandi sem geta borið kjarnorkuvopn. Þeir segja G7-ríkin reiðubúin til að eiga milligöngu um samninga milli Úkraínu og áhugasamra ríkja um langtíma öryggistryggingar til handa fyrrnefnda.

Leiðtogarnir kalla einnig eftir því að úkraínskum ríkisborgurum sem hafa verið fluttir til Rússlands verði skilað aftur til sinna heima og segja að stríðsglæpamönnum verði engin grið gefin.

Þeir segja Rússa bera gríðarmikla ábyrgð á matvælaóöryggi sem heimurinn stendur frammi fyrir og heita samræmdum aðgerðum til að berjast gegn því.

Bandamenn standa sameinaðir

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, varar við þreytu gagnvart aðgerðum bandamanna gegn Rússum en segir leiðtoga G7-ríkjanna, sem nú funda í Þýskalandi, standa sameinaða.

Johnson sagði við BBC fyrir fundinn að ríki heims hefðu áhyggjur af áframhaldandi hernaðaraðgerðum Rússa í Úkraínu og áhrifum þeirra á matvæla- og orkuverð.

Boris Johnson á fundi G7 ríkjanna.

Bandamenn stæðu hins vegar enn sameinaðir í afstöðu sinni og ástæðan væri einföld: Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti hefði engin úrræði til að semja um endalok átakanna og við þær aðstæður myndu bandamenn halda áfram að styðja við Úkráinumenn, með því að aðstoða þá efnahagslega og við að koma kornbirgðum úr landi.

„Og að sjálfsögðu verðum við að hjálpa þeim að verja sig. Og það er það sem við munum gera áfram,“ sagði Johnson.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×