Erlent

Mörg stórfyrirtæki hyggjast aðstoða starfsmenn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Dómurinn hefur vakið bæði sorg og gleði vestanhafs.
Dómurinn hefur vakið bæði sorg og gleði vestanhafs. AP/Gemunu Amarasinghe

Mörg stórfyrirtæki í Bandaríkjunum hafa lýst því yfir að þau muni greiða fyrir ferðalög starfsmanna sinna sem neyðast til að leita til annara ríkja til að gangast undir þungunarrof, eftir að hæstiréttur landsins snéri niðurstöðunni í Roe gegn Wade.

Hér eftir verður ríkjum í sjálfsvald sett hvort þau heimila eða banna konum að gangast undir þungunarrof. Gera má ráð fyrir að þjónustan verði bönnuð eða verulega takmörkuð í um það bil 20 ríkjum.

Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa brugðist við og segjast ætla að styðja við starfsmenn sína sem velja að gangast undir þungunarrof eru Meta, Disney, Netflix og Bank of America. Önnur fyrirtæki, til að mynda Microsoft og fjármálafyrirtækin Citigroup og JPMorgan Chase, höfðu þegar tilkynnt að þau myndu grípa til aðgerða.

Fyrirtækin eru sögð sæta nokkrum þrýstingi meðal almennings og fjárfesta um að taka afstöðu til þessa afar umdeilda málefnis, ekki síst fyrirtæki sem eru með stórar starfsstöðvar í ríkjum þar sem þungunarrof hefur verið eða verður bannað og/eða takmarkað.

Samkvæmt Guardian hafa yfirvöld í Texas til að mynda verið að reyna að laða fyrirtæki að með lágum sköttum og litlu regluverki en á sama tíma er útlit fyrir að réttur kvenna til þungunarrofs verði verulega takmarkaður í ríkinu. 

Rétturinn til að ferðast milli ríkja bundinn í stjórnarskrána

Stjórnmálamenn virðast vegar misáhugasamir um að halda í fyrirtækin.

Fyrr á þessu ári varaði Birscoe Cain, þingmaður í Texas, við því að hann myndi leggja fram frumvarp sem bannaði opinberum aðilum að skipta við fyrirtæki sem greiða ferðakostnað starfsmanna sem fara á milli ríkja til að gangast undir þungunnarrof.

Borgarstjóri St Louis, Tishaura Jones, sagði hins vegar á Twitter um helgina að bann myndi gera ríkjum erfiðara fyrir að laða til sín stórfyrirtæki og Quinton Lucas, borgarstjóri í Kansas, sagði að eitt fyrirtæki hefði þegar hætt við að flytja til borgarinnar.

Það vekur athygli að mörg stærstu fyrirtæki Bandaríkjanna, til að mynda McDonald's, Walmart, Coca-Cola, PepsiCo og General Motors hafa ekki tjáð sig um ákvörðun hæstaréttar.

Einn dómara réttarins, sem studdi viðsnúninginn í Roe, virðist hins vegar taka ákveðna afstöðu varðandi lögmæti þess að ferðast milli ríkja til að gangast undir þungunarrof. 

Brett Kavanaugh, einn dómaranna sem Donald Trump skipaði í embætti, segir í áliti sínu að það bryti gegn stjórnarskránni að banna konum að ferðast til að nálgast þjónustuna og vísar til stjórnarskrárvarins réttar fólks til að ferðast milli ríkja.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×