Viðskipti innlent

Fá 220 milljónir til að efla net­öryggi hjá er­lendum fyrir­tækjum

Eiður Þór Árnason skrifar
Nanitor stefnir rakleitt í frekari útrás.
Nanitor stefnir rakleitt í frekari útrás. Aðsend

Íslenska netöryggisfyrirtækið Nanitor hefur tryggt sér 220 milljóna króna fjármögnun frá Brunni með þátttöku einkafjárfesta. Stendur til að nýta fjármagnið til stækkunar á erlendum mörkuðum.

Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að það sérhæfi sig í rauntímagreiningu á heildstæðu grunnöryggi tölvukerfa fyrirtækja með því markmiði að bæta öryggisstöðu upplýsingakerfa.

„Með þessari virku vöktun er fylgst með öryggisstillingum, þekktum veikleikum og hugbúnaðaruppfærslum tölvukerfa en þannig er komið í veg fyrir að skaði hljótist af mögulegum netárásum.“

Meðal viðskiptavina Nanitor í dag eru Booking.com, Rentalcars.com, Birmingham City Council, Oman Arab Bank, Festi, Rarik og Valitor.

Lausnin sögð einstök á heimsvísu

Að sögn Nanitor felst sérstaða þess í snjallgreiningarlausninni Nanitor Discovery Engine sem uppsett sé á netþjónum, útstöðvum, netbúnaði og gagnagrunnum og birti rauntímastöðuyfirlit í miðlægu stjórnborði. Stjórnborðið geri stjórnendum fyrirtækja og netöyggis auðvelt að hafa yfirsýn, og bregðast hratt við mögulegri vá.

„Lausn Nanitor er einstök á heimsvísu og gerir fyrirtækjum stórum sem smáum kleift að verjast mögulegum netárásum á mjög skilvirkan og einfaldan hátt. Áður fyrr voru netöryggislausnir af þessum gæðaflokki eingöngu aðgengilegar erlendum stjónvöldum og stærri fyrirtækjum. Í þessum málaflokki eru netöryggismál oft keyrð áfram af viðbragði við utankomandi vá en Nanitor lausnin snýr þessu við og byggir upp kerfislegt grunnnetöryggi sem eykur mótstöðuafl gegn yfirvofandi netárásum,“ segir Sigurður Arnljótsson, fjárfestingastjóri hjá Brunni Ventures og stjórnamaður í stjórn Nanitor, í tilkynningu.

Átta ára þróun að baki

„Viðskiptatækifæri Nanitor er að fyrirtæki og stjórnvöld erlendis hafa gert sér grein fyrir netöryggisvánni og eru að fjárfesta gríðarlega í kerfislægu netöryggi. Þessi fjármögnun gerir okkur kleift að byggja upp frekar starfssemi okkar erlendis og takast á við stækkun félagsins næstu misseri,“ segir Jón Fannar Karlsson Taylor, forstjóri Nanitor.

Lausn Nanitor hefur verið í þróun síðastliðin átta ár og felst í því að geta sótt öryggisupplýsingar niður á einstaka tölvu og tæki sem staðsett er hjá viðskiptavinum í rauntíma.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×