Innlent

Þriðjungur grunnskóladrengja geti ekki lesið sér til gagns: „Þetta er hrópandi“

Viktor Örn Ásgeirsson skrifar
Rúmur þriðjungur drengja sem útskrifast úr grunnskóla geta ekki lesið sér til gagns samkvæmt nýjum rannsóknum.
Rúmur þriðjungur drengja sem útskrifast úr grunnskóla geta ekki lesið sér til gagns samkvæmt nýjum rannsóknum. Vísir/Vilhelm

Kennarar segja að þriðjungur drengja geti ekki lesið sér til gagns við útskrift úr grunnskóla. Læsi og orðaforði grunnskóla- og leikskólabarna fari ört versnandi. Nauðsynlegt sé að grípa inn í.

Magnús Þór Jónsson, nýkjörinn formaður Kennarasambands Íslands, var í viðtali á Sprengisandi í dag ásamt Svövu Þórhildi Hjaltalín kennara. Aðspurður kveðst Magnús ekki draga tölur kannana um læsi grunnskólabarna í efa.

Fagna því að verið sé að tækla vandann

„Þegar ég horfi til baka í minni skólagöngu þá var það svolítið talað þannig að við værum rosalega læs og værum bókaþjóðin. Ég kynnist því mjög fljótlega þegar ég kem hér í borgina að vinna, að vinna með hópi barna sem áttu við námsörðugleika að stríða, þar rímar þessi tala - þriðjungur. Þar var þetta svolítið sýnilegt því að á þeim tíma var verið að raða námshópum upp eftir ákveðinni getu. 

Þar vorum við að glíma við það að til dæmis þurfa að lesa Gísla sögu Súrssonar og ég var að kenna hópum sem áttu að gera það sem ég rak mig ákveðið á að voru ekki að ráða við þetta,“ segir Magnús Þór.

Hann fagnar því að verið sé að tækla vandann með auknum rannsóknum og könnunum og Svava Þórhildur tekur undir.

Harmar að ekki hafi verið gripið fyrr inn í

Hún segir að það sorglegasta við stöðuna sé að ástandið hafi verið sambærilegt síðustu ár. Hún harmar að ekki hafi verið gripið inn í og bætir við að staðan sé einnig slæm í til dæmis náttúrufræði og stærðfræði: Þetta er alvarleg staða og ég vona að nú sé lag.

„Við erum með vísbendingu um að orðaforði barna sé að fara verulega aftur. Þau skilja íslenskt tungumál síður og kunna of lítið af orðum, og þarna þurfum við náttúrulega könnun á landsvísu. Við erum líka með tölur 39 prósent ekki læs eftir annan bekk í Reykjavík.

 Við erum með 32,5 prósent innflytjanda sem eru í grunnskóla á rauðu og gulu ljósi, þau kunna ekki íslensku. 26 prósent falla úr framhaldsskóla en 62 prósent innflytjenda. Þetta er hrópandi,“ segir Svava Þórhildur

Hér er aðeins stiklað á stóru en hægt er að hlusta á viðtalið í heild sinni hér að neðan:



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×