Innlent

Samið um smíði þjóðargjafar vegna afmælis fullveldisins

Kristján Már Unnarsson skrifar
Samningur um smíðina undirritaður í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði síðdegis.
Samningur um smíðina undirritaður í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í Hafnarfirði síðdegis. Egill Aðalsteinsson

Samningur um smíði nýs hafrannsóknaskips var undirritaður nú síðdegis. Áætlað er smíðin kosti um 4,7 milljarða króna og á skipið að vera tilbúið haustið 2024, eftir 30 mánuði.

Í fréttum Stöðvar 2 var sýnt frá athöfninni í höfuðstöðvum Hafró í Hafnarfirði þegar ráðherrarnir Bjarni Benediktsson og Svandís Svavarsdóttir, ásamt Þorsteini Sigurðssyni, forstjóra Hafrannsóknastofnunar, skrifuðu undir samninginn við skipasmíðastöðina Astilleros Armón í Vigo á Spáni. Spænska stöðin átti lægsta tilboð í smíði skipsins, um 33,5 milljónir evra, og var gengið að því.

Nýja skipið á að vera tilbúið haustið 2024 og leysir af Bjarna Sæmundsson.Hafrannsóknastofnun

Alþingi samþykkti þingsályktun um smíði skipsins á hátíðarfundi á Lögbergi á Þingvöllum sumarið 2018 í tilefni eitthundrað ára fullveldisafmælisins. Tillagan gerði ráð fyrir að skipið yrði smíðað á árunum 2020 og 2021.

„Öflugar hafrannsóknir og vöktun á umhverfi sjávar eru forsenda sjálfbærrar nýtingar sjávarauðlindanna sem auka þekkingu á umhverfinu og þeim breytingum sem þar eru að verða,“ sagði í greinargerð tillögunnar sem formenn allra stjórnmálaflokka á Alþingi stóðu að með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra sem fyrsta flutningsmann.

Að lokinni undirritun. Frá vinstri Þorsteinn Sigurðsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra, Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra og Laudelino Alperi Baragaño, forstjóri Astilleros Armón í Vigo.Egill Aðalsteinsson

Nýja skipinu er ætlað að koma í stað rannsóknaskipsins Bjarna Sæmundssonar, sem smíðað var árið 1970 og verður þannig 52 ára gamalt í ár. Nýrra skip Hafrannsóknastofnunar, Árni Friðriksson, var smíðað árið 2000, og er því 22 ára gamalt.

Hér má sjá frétt Stöðvar 2:


Tengdar fréttir

Hafró fær loksins langþráð rannsóknarskip

Á hátíðarfundi Alþingis á Þingvöllum í næstu viku verða afgreiddar tvær tillögur formanna allra flokka á þingi um kaup á nýju rannsóknarskipi fyrir Hafrannsóknarstofnun og stofnun Barnamenningarsjóðs sem fær fimm hundruð milljónir króna á næstu fimm árum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×