Skoðun

Lágar álögur. Líka fyrir barnafjölskyldur

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Í Garðabæ eru leikskólagjöld ein þau hæstu á öllu landinu, þó svo að útsvarsprósentan sé ein sú lægsta. Foreldrar með barn á leikskóla í Garðabæ borga í ár rúmlega 126.000 kr. meira á ári en foreldrar í Reykjavík, ef barnið dvelur í 8 klst. á dag og fær fæði.

Við í Viðreisn viljum breyta þessu því við viljum lágar álögur á alla íbúa en ekki bara fyrir suma. Því mun Viðreisn í Garðabæ leggja áherslu á að lækka álögur á barnafjölskyldur með því að lækka leikskólagjöld um 5% strax á nýju kjörtímabili.

Það er engin sanngirni falin í því að barnafjölskyldum í Garðabæ sé mismunað með þessum hætti. Við í Viðreisn viljum að ungt fólk velji að búa í okkar góða bæ og sé gert valið kleift óháð efnahag. Við viljum sanngjarnt samfélag í Garðabæ þar sem barnafjölskyldum er mætt með raunverulegum aðgerðum.

Garðabær hefur efni á að gera betur

Garðabær er ríkt sveitarfélag. Á síðasta ári voru tekjur umfram áætlun um 1,5 milljarður sem skýrist að mestu leyti af því að fleiri barnafjölskyldur fluttu í bæinn en meirihlutinn hafði gert sér í hugarlund. Það er mikill vöxtur í Garðabænum og að þeim dýrmæta vexti þarf að hlúa sérstaklega. Vexti sem kristallast í þessari fjölgun barnafjölskyldna. Til að tryggja framtíð sveitarfélagsins vill Viðreisn sjá Garðabæ þróast betur sem fjölskylduvænt sveitarfélag, þar sem stutt er við barnafjölskyldur með öllum tiltækum ráðum. Það á ekki að vera svo að það sé dýrara að búa í Garðabæ en annars staðar.

Við í Viðreisn stöndum fyrir ábyrgri fjármálastjórn í þágu velferðar. Því fylgir annað og meira en meirihlutinn hér í Garðabæ stærir sig af.

Með faglegri vinnubrögðum lækkum við leikskólagjöld

Opinbert stjórnvald, líkt og Garðabær, þarf að tileinka sér faglega stjórnsýslu og rekstur. Það þarf að tryggja að hagkvæmasta leiðin sé farin við kaup á vöru og þjónustu og fylgja lögum um opinber innkaup. Við í Viðreisn viljum að þeirri einföldu línu sé fylgt að fara eigi með slík kaup í útboð, hikstalaust. Það á að fá sem besta þjónustu og vörur án þess að greiða of mikið fyrir. Þar gegna útboð gríðarlega miklu máli.

Lögbundin útboð standa því miður í núverandi meirihluta, þrátt fyrir mæt tilmæli í stjórnsýsluúttekt sem gerð var í sveitarfélaginu á fyrri hluta kjörtímabilsins. Ítrekað hafa ákvarðanir verið teknar um kaup, án útboðs, upp á hundruði milljóna. Við í Viðreisn höfum mótmælt þessu. Því miður hafa þau mótmæli fallið fyrir daufum eyrum meirihlutans.

Viðreisn í Garðabæ telur að með því að tryggja faglegri vinnubrögð og festa útboð í sessi getum við sparað sveitarfélaginu hátt í 2 milljarða á næstu fimm árum. Þessa milljarða getum við notað til að lækka leikskólagjöld strax og gera Garðabæ enn betri bæ til að búa í fyrir barnafjölskyldur.

Höfundur er bæjarfulltrúi og oddviti Viðreisnar í Garðabæ.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×