Körfubolti

Lögmál leiksins: „Já takk“ við CP3 en „nei takk“ við Brooklyn gegn Milwaukee

Sindri Sverrisson skrifar
Það var létt yfir mönnum í Lögmálum leiksins á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöld.
Það var létt yfir mönnum í Lögmálum leiksins á Stöð 2 Sport 2 í gærkvöld. Stöð 2 Sport 2

Boðið var upp á nýjan leik í þættinum Lögmál leiksins í gærkvöld þar sem NBA-deildin í körfubolta er krufin til mergjar.

Leikurinn ber heitið „Já takk/Nei takk“ og virkar þannig að þáttastjórnandinn Kjartan Ati Kjartansson ber fram fullyrðingu og sérfræðingar hans segja annað hvort „Já, takk“ eða „Nei, takk“, með tilheyrandi rökstuðningi.

Brot úr þættinum, sem sýndur er á Stöð 2 Sport 2 á mánudögum, má sjá hér að neðan:

Klippa: Lögmál leiksins - Já takk eða nei takk

Fullyrðingar Kjartans voru úr ýmsum áttum og oftast greindi menn á að einhverju leyti. Til að mynda varðandi Jayson Tatum, lykilleikmann Boston Celtics:

„Það hefði örugglega verið nei takk í gær en svo átti hann 50 stiga leik í fyrrinótt, þannig að ég verð eiginlega að segja já takk. Við vitum að „þakið“ er enn rosalega hátt hjá Tatum. Hann getur skorað körfur í öllum regnbogans litum,“ sagði Tómas Steindórsson.

  • Fullyrðingarnar í „Já takk/Nei takk“:
  • Cleveland verður með heimavallarrétt
  • Jayson Tatum
  • Brooklyn leggur Milwaukee í seríu
  • CP3 á heima í MVP-umræðunni
  • Úlfarnir komast í úrslitakeppnina

Tómas var einnig á því að Brooklyn Nets myndi ekki geta lagt Milwaukee Bucks að velli í seríu, og Hörður Unnsteinsson tók undir það:

„Nei takk. Milwaukee og Miami held ég að verði tvö bestu liðin þegar upp er staðið í austrinu í vor. Í seríu núna myndi Milwaukee leggja Brooklyn að mínu mati,“ sagði Hörður en Sigurður Orri Kristjánsson var ekki sammála.

„Besti leikmaðurinn í besta liðinu“

Félagarnir voru hins vegar allir sammála um að Chris Paul ætti heima í MVP-umræðunni og Sigurður Orri sagði Paul, eða CP3, geta hlotið þann heiður að vera útnefndur mikilvægasti leikmaður NBA-deildarinnar ef Phoenix Suns héldi áfram sömu sigurgöngu og undanfarið:

„Auðvitað á hann heima í MVP-umræðunni. Hann er besti leikmaðurinn í besta liðinu. En, hann getur ekki orðið MVP, nema Phoenix gjörsamlega stingi af. Þá getur hann fengið svona „Steve Nash MVP“ með sín 15-16 og 10-11. Hann leiðir deildina í stoðsendingum, og er númer þrjú í stolnum boltum, þeir vinna hvern einasta leik. Ef þeir stinga af þá á hann séns, og hann á auðvitað heima í MVP-umræðunni og verður í topp fimm, rétt eins og í fyrra,“ sagði Sigurður.

Umræðuna alla má sjá hér að ofan.


Lögmál leiksins er vikulegur þáttur um NBA-deildina sem er sýndur á mánudögum á Stöð 2 Sport 2. NBA-deildin er hluti af Sport Erlent sem kostar kr. 3.990 á mánuði. Smelltu hér til að kaupa áskrift.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×