Innlent

Tæplega hundrað manns hafa tekið eigið líf á Covid-tímum

Jakob Bjarnar skrifar
Miklu fleiri falla fyrir eigin hendi en farast úr Covid. En mikill munur er á því hvernig viðbrögð samfélagsins eru gagnvart þeirri staðreynd.
Miklu fleiri falla fyrir eigin hendi en farast úr Covid. En mikill munur er á því hvernig viðbrögð samfélagsins eru gagnvart þeirri staðreynd. vísir/vilhelm

Á sama tíma og faraldurinn hefur dregið samtals 37 manns til dauða hafa tæplega hundrað manns tekið eigið líf og fleiri hundruð látist vegna fjölþættra afleiðinga fíknar.

Þetta kemur fram í grein sem þau Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar og Sigrún Sigurðardóttir, dósent við HA og stjórnarkona í Geðhjálp, rita og birtist á Vísi nú fyrir stundu.

Þar er varpað fram þeirri spurningu hvað valdi því að við sem samfélag tökum faraldurinn svo traustum tökum og raun ber vitni en látum þessa staðreynd sem áður er nefnd hjá líða.

„Engir upplýsingafundir hafa verið haldnir, fá minnisblöð skrifuð, ekki efnt til markvissra mótvægisaðgerða né samfélagið stöðvað til þess að fyrirbyggja þau dauðsföll,“ segir í greininni.

Covid-faraldurinn sé vissulega erfiður viðureignar og áskorun fyrir heilbrigðiskerfið en:

„30 af þeim 37 sem hafa látist af völdum Covid voru eldri en 70 ára, 20 eldri en 80 ára og þrír yngri en 60 ára. Til samanburðar voru 35 af þeim 47 sem tóku eigið líf árið 2020 yngri en 60 ára. 17 voru yngri en 29 ára og þrír yngri en 18 ára.“

Sigrún Sigurðardóttir og Grímur Atlason.aðsend

Grímur Atlason segist í samtali við Vísi ekki í nokkrum vafa um að þær aðgerðir sem hefur verið gripið til vegna Covid-faraldursins hafi haft neikvæð áhrif á geðheilsu fjölmargra og ekki þá síst þeirra sem yngri eru. Sem sé umhugsunarefni.

„Ég er ekki að segja að það eigi ekki að bregðast við Covid-faraldrinum. En hins vegar verðum við að grípa til mótvægisaðgerða vegna geðheilsu þjóðarinnar sem ætti í raun að vera forgangsatriði rétt eins og það að setja fjármuni í efnahagslífið. Einangrun, óvissa, ótti … allt getur þetta stuðlað að eða ýtt undir geðrænar áskoranir. Og við því verðum við að bregðast. Mótvægisaðgerðirnar hafa verið svo takmarkaðar,“ segir Grímur.

Á þessu línuriti frá Embætti landlæknis má sjá verulega aukingu í tíðni sjálfsvíga.skjáskot

Tengdar fréttir

Framtíð geðheilbrigðismála

Á hverjum degi síðastliðna 22 mánuði hafa íslensk stjórnvöld birt tölulegar upplýsingar um Covid-faraldurinn. Hversu margir greinast, eru í sóttkví, eru inniliggjandi, eru á gjörgæslu, eru á öndunarvél og hafa látist.

Sjálfsvígum kvenna fjölgaði mikið á Covid-árinu 2020

Á síðasta ári sviptu 47 sig lífi á Ísland. Þetta kemur fram í bráðabirgðatölum sem Landlæknisembættið birti í dag en að meðaltali á árunum 2011 til 2020 hafa orðið 39 sjálfsvíg hér á landi. Sjálfsvígin voru 15 á meðal kvenna og 32 á meðal karla í fyrra.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×