Fótbolti

Enginn Messi þegar PSG vann áttunda leikinn í röð

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Idrissa Gana Gueye skoraði eina mark leiksins í kvöld.
Idrissa Gana Gueye skoraði eina mark leiksins í kvöld. ANP Sport via Getty Images

Paris Saint-Germain er enn með fullt hús stiga í frönsku úrvalsdeildinni eftir 1-0 sigur gegn Montpellier í kvöld. Lionel Messi var ekki með liðinu í kvöld frekar en í síðasta leik.

Messi var fjarri góðu gamni í dag eftir að hann meiddist á hné á dögunum. Hann er þó byrjaður að æfa aftur og gæti náð leiknum gegn Manchester City í Meistaradeild Evrópu í miðri viku.

Kom það þó ekki að sök, en Idrissa Gana Gueye skoraði fyrsta mark leiksins strax á 14. mínútu eftir stoðsendingu frá Angel Di Maria.

Gestirnir í Montpellier reyndu hvað þeir gátu til að jafna leikinn, en allt kom fyrir ekki og PSG tvöfaldaði forystu sína á 89. mínútu með marki frá Julian Deaxler. 

PSG hefur nú unnið alla átta leiki sína í upphafi tímabils. Liðið er lang efst í frönsku deildinni með 24 stig, tíu stigum meira en Marseille í öðru sæti, sem á þó tvo leiki til góða. Montpellier situr í 11. sæti með níu stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×