Enski boltinn

Rooney fullvissar stuðningsmenn Derby um að hann sé ekki á förum

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Derby County v Stoke City - Sky Bet Championship - Pride Park Derby County manager Wayne Rooney on the touchline during the Sky Bet Championship match at the Pride Park, Derby. Picture date: Saturday September 18, 2021. (Photo by Barrington Coombs/PA Images via Getty Images)
Derby County v Stoke City - Sky Bet Championship - Pride Park Derby County manager Wayne Rooney on the touchline during the Sky Bet Championship match at the Pride Park, Derby. Picture date: Saturday September 18, 2021. (Photo by Barrington Coombs/PA Images via Getty Images)

Wayne Rooney, knattspyrnustjóri Derby County, segist ætla að berjast fyrir félagið og að hann myndi ekki skilja starfsfólkið eftir í skítnum eftir að B-deildarliðið fór í greiðslustöðvun.

Í gær var greint frá því að félagið hefði verið sett í greiðslustöðvun og að tólf stig hafi verið dregin af liðinu. Derby situr því á botni ensku B-deildarinnar með tvö stig í mínus.

Rooney var spurður í dag hvort að hann hefði tekið við félaginu ef hann hefði vitað af fjárhagsvandræðum þess.

„Ég efast um það,“ sagði Rooney. „En ég mun berjast fyrir félagið, ég myndi ekki skilja starfsfólkið eftir í skítnum,“ bætti hann svo við.

Þessi fyrrum sóknarmaður Manchester United og enska landsliðsins, segir það vanvirðingu að hann hafi þurft að frétta af því að félagið væri á leið í greiðslustöðvun í sjónvarpinu, frekar en að Mel Morris, eigandi þess, hafi sagt honum það í persónu.

„Ég hef ekki talað við hann síðan 9. ágúst. Ég hringdi í hann úr síma liðslæknisins og þá svaraði hann. Augljóslega svarar hann lækninum, en ekki þjálfaranum, af einhverri ástæðu.“

Vongóðir um að leysa málin

Stjórnarformenn fyrirtækisins Quantuma, Andrew Hosking, Carl Jackson og Andrew Andronikou, vinna nú í því að leita fjármagns fyrir Derby til styttri tíma. Þeir hafa staðfest það að klúbburinn skuldi tugi milljóna punda.

En þeir eru þó bjartsýnir á það að málin muni leysast fyrir Derby.

„Ég sé þetta þannig að það eru 95% líkur á því að þetta muni leysast á komandi mánuðum,“ sagði Hosking í samtali við BBC.

Derby mætir Sheffield United í ensku 1. deildinni á morgun, en þeir sitja í 14. sæti með níu stig eftir átta leiki. Eins og áður segir er Derby á botni deildarinnar með tvö stig í mínus. Ef ekki væri búið að taka stig af Derby væru þeir þrem sætum fyrir ofan Sheffield, með einu stigi meira.


Tengdar fréttir

Tólf stig verða tekin af Derby vegna fjárhagsvandræða

Tólf stig verða dregin af enska knattspyrnufélaginu Derby County ef félagið finnur ekki nýja eigendur á næstu dögum. Kórónuveirufaraldurinn hefur sett strik í reikninginn og félagið er í miklum fjárhagsvandræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×