Innlent

Telja sig geta bjargað Suðurstrandarvegi með hraunbrú

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar

Hægt er að bjarga Suðurstrandarvegi með svokallaðri hraunbrú yfir veginn, að sögn Magnúsar Rannvers Rafnssonar, verkfræðings og framkvæmdastjóra Línudans ehf. Magnús og aðrir verkfræðingar hjá Verkfræðistofu Suðurnesja hafa lagt fram tillögu um brúna til almannavarna. Hann segir verkefnið bæði einfalt og fljótlegt í framkvæmd.

„Þetta er mannvirki sem ver veginn og ef hraun vill fljóta að þessum vegi þá tekur mannvirkið í raun við og færir það yfir veginn,“ segir Magnús.

Þannig er hugmyndin að byggja varnargarða sem geta stýrt hraunflæði inn í ákveðinn farveg og stystu leið út í sjó. Í framhaldinu að byggja brú með römpum á hliðum yfir Suðurstrandarveg sem leiðir hægfljótandi hraunið yfir veginn.

„Hugmyndin er að það sé hægt að stýra þessu þannig að hraunið fari á tiltekinn stað eða tiltekið afmarkað svæði þangað sem líklegt er að hraunið fari. Þannig er til dæmis hægt að nota þessa leiðigarða sem hafa verið settir upp. Það er auðvitað margt óvíst í þessu enn þá en með nokkurri vissu er hægt að segja að svona er hægt að verja veginn.“

Hann segir kostina marga. Hægt verði að halda Suðurstrandarvegi opnum, þó eldgosið vari í mörg ár. Þá verði opin leið sem myndi öruggt skjól fyrir vatnslagnir, rafmagn og ljósleiðara og að mannvirkið sé hægt að framlengja í báðar áttir, eftir því hvernig hraunið vill helst flæða. Þá verði þarna í framtíðinni jarðgöng, svo dæmi séu tekinn. Aðspurður segir hann litlar líkur á að hraunið taki brúna með sér.

„Eðlisþungi hraunsins er í sjálfu sér ekki mjög mikill og ég tel mjög líklegt aðþað sé hægt aðútfæra þarna tiltölulega einfalt mannvirki sem tekur viðþessu,“ segir Magnús.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×