Lífið

Bein út­sending: Náin tengsl ungra barna og for­eldra skilar á­vinningi

Tinni Sveinsson skrifar
Börn í dorgveiðikeppni í Hafnarfjarðarhöfn.
Börn í dorgveiðikeppni í Hafnarfjarðarhöfn. Vísir/Vilhelm

Samtökin Fyrstu fimm um fjölskyldu-og barnvænna Ísland standa fyrir málþingi um náin tengsl ungra barna og foreldra, ávinning af slíkum markmiðum og áskoranir á götu þeirra.

Hvernig má tryggja minni streitu og álag á fjölskyldur á Íslandi? Hver er ávinningur af slíkum markmiðum og hver er birtingarmynd slíkra áherslna í stjórnmálum? Leitast verður að svara þessum spurningum og fleirum á málþinginu, sem haldið er á kaffihúsinu Kaffi Dal við Sundlaugarveg og stendur yfir frá klukkan 15 til 17.

Mælendur

Sæunn Kjartansdóttir sálgreinir. Hún skrifaði Fyrstu 1000 dagana og Árin sem engin man ásamt því að starfa á Miðstöð foreldra og barna. Leiðarstefið í hennar fræðum er að árangursrík tengslamyndun foreldra og barna í frumbernsku sé eitt mikilvægasta veganesti sem börn geta fengið og vinnur gegn kvíða og streitumyndun alla ævi.

Sverrir Norland rithöfundur deilir reynslusögu af fjölskyldu sinni og gefur ákveðna innsýn í hark ungra foreldra með tvö börn undir fimm ára aldri.

Ásmundur Einar Daðason barnamálaráðherra. Líklegt er að hann ræði um árangur núverandi ríkisstjórnar og áframhaldandi stefnu félagsmálaráðuneytis í málefnum ungbarna.

Matthías Ólafsson, meðstjórnandi í Fyrstu fimm, er umræðustjóri og verður einnig með erindi um stefnu Fyrstu fimm og persónulega reynslu sína við feðrahlutverkinu.

Pop-up leikvöllur

Foreldrum er gert kleift á þessu málþingi að mæta með börn sín. Inni á Kaffi Dal er afmarkað leiksvæði þar sem börn geta leikið sér, í fylgd með fullorðnum. Á tjaldsvæði í hæfilegri fjarlægð frá málþinginu verður pop-up leikvöllur Meðvitaðra foreldra. 

Hugmyndin með barnvænu málþingi er að foreldrar geti mætt á málþingið en samt haft barnið í forgangi. Ef barnið kýs að vera á leiksvæði getur foreldri haft málþingið í eyranu í gegnum útsendinguna hér á Vísi en hún gerir foreldrum vitanlega líka kleift að hlusta að heiman.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×