Skoðun

Alltaf hlut­laus

Rósa Kristinsdóttir skrifar

Nú stendur yfir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, þar sem tveir reyndir en ólíkir stjórnmálamenn gefa kost á sér í fyrsta sætið. Eins og flestir þekkja getur það haft afgerandi áhrif á stefnu og áherslur flokksins hverjir leiða framboðslistana fyrir kosningar. Það hefur hins vegar ekki aðeins áhrif á flokkinn, heldur samfélagið allt. Uppröðunin ræður því hverjir komast fyrstir inn á Alþingi og koma þar sínum áherslum á framfæri.

Í opinberri umræðu heyrist reglulega ákall um persónukjör. Að fólk væri til í að geta einfaldlega valið einstaklinga inn á þing, frekar en að þurfa að kjósa heilan flokk og allt sem honum fylgir. Í því samhengi er rétt að muna að prófkjör eru ekkert annað en persónukjör innan flokka. Þeir sem vilja komast sem næst persónukjöri gætu með réttu skráð sig í alla flokka sem velja frambjóðendur með lýðræðislegum hætti, og tekið þátt í prófkjörunum í sínu kjördæmi. Í dag er hægt að skrá sig í og úr flokkunum með einum smelli.

Höfuð í sand

Það virðist vera einhvers konar prinsippmál hjá fleirum en mann myndi nokkurn tímann gruna að skrá sig ekki í stjórnmálaflokk. Jafnvel þó það sé bara um nokkurra daga skeið til að taka þátt í persónukjörinu. Þetta á jafnt við um þá sem eru mjög andsnúnir viðkomandi flokki og þá sem geta vel hugsað sér að kjósa hann. Þar virðist hlutleysið vera ofar öllu og mikilvægt að vera aldrei skráður í flokk, ekki í einn einasta dag.

Að vera óflokksbundinn til lengri tíma er skiljanleg afstaða. Hins vegar er mikilvægt að hafa hugfast hvað því prinsippi fylgir ef það er algjörlega ófrávíkjanlegt. Í algjöru hlutleysi felst nefnilega líka ákvörðun um að láta aðra velja fyrir sig. Að grafa höfuðið í sandinn, segjast vona að hinn eða þessi frambjóðandi nái árangri – en gera ekkert til að stuðla að því sjálfur.

Eldri velja fyrir yngri

Í aðdraganda kosninga heyrast oft gagnrýnisraddir, ekki síst frá yngra fólki. Kvartað er yfir því að fjölbreytnin á framboðslistum sé lítil, kynjahlutföll séu skökk og ungt fólk hafi of lítið vægi með sínar áherslur og stefnumál. Þetta sama fólk lítur hins vegar oft á það sem mikla dyggð að hafa ekki áhrif á einmitt þessi atriði.

Staðan er sú að þeir sem eldri eru taka þátt í prófkjörum í mun meiri mæli en yngri kynslóðin. Ungt fólk lætur það eldra einfaldlega um að velja á listann fyrir sig. Ég ætla ekki að vera ein af þeim. Í þessari viku hvet ég áhugasama til að skrá sig í Sjálfstæðisflokkinn, mæta og kjósa Áslaugu Örnu í fyrsta sæti í Reykjavík. Unga konu sem hefur sýnt og sannað að hún á ekki síður erindi en eldri og reyndari karlar. Stjórnmálakonu sem hefur lagt áherslu á mál ungs fólks og kvenna, barist fyrir frjálsu og fjölbreyttu samfélagi og komið fleiri málum í gegn en flestir – á örstuttum tíma. Eftir prófkjörið getur hver sem vill skráð sig úr flokknum aftur, með einum smelli.

Ef fólk sem við viljum sjá í forystunni gefur kost á sér skulum við ákveða að hafa áhrif. Þín skoðun og þinn stuðningur skiptir raunverulegu máli og þú hefur nokkrar mínútur aflögu til að sýna það í verki.

Ekki láta aðra taka ákvörðunina fyrir þig. Ekki vera alltaf hlutlaus.

Höfundur er stuðningskona Áslaugar Örnu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×