Innlent

Tólf greindust með Covid-19 í gær en tíu voru í sóttkví

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Sýnatökuglös eins og notuð eru við skimun vegna kórónuveirunnar.
Sýnatökuglös eins og notuð eru við skimun vegna kórónuveirunnar. Vísir/Vilhelm

Tólf greindust með kórónuveiruna í gær. Tíu voru í sóttkví en tveir utan sóttkvíar. 120 eru í einangrun.

Þetta kemur fram í uppfærðum tölum á Covid.is.

Eru nú 786 í sóttkví og 949 í skimunarsóttkví.

Þrír liggja inni á Landspítalanum.

Frá því að faraldurinn hófst hafa 6.362 smit verið staðfest á Íslandi. Þá hafa 335.253 sýni verið tekin innanlands frá 28. febrúar 2020.

Fréttin verður uppfærð.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×