Innlent

Skólastarf fellur niður vegna brunans í Glerárskóla

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Eldurinn kom upp í kjallara Gleraárskóla á Akureyri í kvöld. 
Eldurinn kom upp í kjallara Gleraárskóla á Akureyri í kvöld.  Vísir/Tryggvi Páll

Skólastarf fellur niður í Glerárskóla á Akureyri í fyrramálið vegna elds sem upp kom kjallara skólans fyrr í kvöld. Eldurinn olli rafmagnsleysi í stórum hluta bæjarins sem gerði það að verkum að viðbragðstími slökkviliðsins var lengri en ella þar sem dyr slökkvistöðvarinnar eru rafknúnar og því þurfti að ná dælubílum út með öðrum ráðum.

Tryggvi Páll Tryggvason fréttamaður tók meðfylgjandi myndskeið á vettvangi brunans. Búið var að slökkva eldinn og unnið var að reykræstingu þegar fréttastofa náði tali af Ólafi Stefánssyni, slökkviliðsstjóra á Akureyri, um klukkan eitt í nótt. 

„Það eru náttúrlega töluverðar skemmdir, bæði eftir eld og reyk,“ segir Ólafur. Engan sakaði þó í brunanum. „Það voru töluverðar skemmdir eftir eld og reyk í kjallaranum í rýminu þar sem að eldurinn var en sem betur fer tókst að slökkva þetta áður en þetta barst víðar um skólann. Þannig að þetta er frekar staðbundið,“ segir Ólafur. „Það eru töluverðar skemmdir á skólanum.“

Ekki liggur endanlega fyrir hvað olli upptökum eldsins en líkur eru taldar á því að eldsupptök megi rekja til flugelda.

Fundað var með fræðslustjóra og skólastjóra og ákvörðun tekin um að fella niður kennslu í skólanum á morgun að sögn Ólafar. Staðan verði síðan eflaust metin á morgun.

Rafmagnsleysið tafði útkallið

„Það er spennistöð stutt frá eldsupptökunum, þar er Norðurorka með spennistöð inni í húsinu,“ segir Ólafur en rekja má rafmagnsleysi í stórum hluta bæjarins í kvöld til eldsins eða reykjarins í Glerárskóla.

„Alla veganna sló þessi spennistöð út, stuttu áður en að útkallið kom og það fór rafmagnið af stórum hluta bæjarins og þar á meðal á slökkvistöðinni,“ segir Ólafur. Rafmagni sló út aðeins örskömmu áður en útkallið barst sem kom sér illa fyrir slökkviliðið.

„Þá fór sem sagt rafmagnið af allri stöðinni og þar á meðal á hurðunum, þær eru allar rafknúnar hurðarnar sem við notum til að koma bílunum út,“ útskýrir Ólafur. „Við höfðum svo sem alveg ráð til þess að opna þær en það tekur aðeins lengri tíma og meiri mannafla og tafði útkallið,“ bætir Ólafur við. „Þetta fór mun betur en á horfði í fyrstu.“



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×