Jól

Bergur Þór les Jólagesti hjá Pétri

Tinni Sveinsson skrifar
Bergur Þór Ingólfsson les jólasögu í jóladagatali dagsins sem við mælum með að fólk horfi á með börnunum sínum.
Bergur Þór Ingólfsson les jólasögu í jóladagatali dagsins sem við mælum með að fólk horfi á með börnunum sínum.

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Dásamleg jólasaga

Það stefnir í erfið jól hjá kettinum Brandi og Pétri gamla en jólakraftaverkin gerast svo sannarlega í hinni dásamlegu jólasögu; Jólagestir hjá Pétri sem Bergur Þór les í glugga dagsins.

Klippa: Jóla­daga­tal Borgar­leik­hússins - 13. desember

Von er á sögum, söng og tónlist, fróðleik, gríni og gleði á hverjum degi fram að jólum frá Borgarleikhúsinu. Gluggar í Jóladagatali leikhússins eru birtir daglega hér á Vísi.


Tengdar fréttir

Matthías Tryggvi flytur jólahugvekju

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Saga Garðars flytur jólalag á panflautu

Borgarleikhúsið býður landsmönnum öllum upp á veglega jóladagskrá í formi jóladagatals í ár. Á hverjum degi frá 1. til 24. desember verður opnaður gluggi og listamenn leikhússins gleðja með fjölbreyttum atriðum.

Opið bréf til jólasveinanna: Góð ráð og hugmyndir í skóinn

Kæru jólasveinar. Nú fer alveg að líða að því að þið komið arkandi til byggða í rauðu göllunum með góðlega, kjánalega og óþarflega skítuga skeggið ykkar. Mikið tökum við ykkur fagnandi í ár, maður lifandi. Þetta ár er nefnilega búið að vera svolítið skrítið, svo ekki sé meira sagt.








×