Sport

Af­reks­fólk sem undir­býr sig fyrir al­þjóð­leg mót fær undan­þágu til að æfa

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðbjörg Jóna gæti því byrjað að æfa á ný.
Guðbjörg Jóna gæti því byrjað að æfa á ný. FRÍ

Góðar fréttir bárust fyrir íslenskt íþróttafólk í dag.

Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ, greindi frá því í samtali við Einar Örn Jónsson í kvöldfréttum RÚV að afreksfólk sem væri að undirbúa sig undir alþjóðleg mót fengi að æfa.

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, spretthlaupi, og Guðni Valur Guðnason, kringlukastari, tjáðu óánægju sína með æfingabannið í samtali við Svövu Kristínu Grétarsdóttur í Sportpakka gærkvöldsins.

Þar sögðust þau hafa áhyggjur að æfingabannið myndi hafa áhrif á þau er þau reyndu að ná Ólympíulágmörkum en æfinga- og keppnisbann hefur ríkt hér á landi síðan í byrjun október.

Klippa: Sportpakkinn - Afreksíþróttafólk fær ekki að æfa

Lárus sagði hins vegar að ÍSÍ hafi í dag fundað með sóttvarnalækni, Þórólfi Guðnasyni, og fulltrúm Almannanvarna og eftir þann fund er ljóst að afreksíþróttafólk sem er að undirbúa sig fyrir stór mót fær að æfa.

„Við áttum fund með sóttvarnalækni og Almannavörnum í hádeginu í dag, þar sem þessir hlutir voru ræddir,“ sagði Lárus Blöndal í samtali við Einar í dag.

Við lögðum einmitt áherslu á þessi atriði, að auðvitað koma æfingum eldri hlutans í gang og keppni, þó að það verði eitthvað seinna, og síðan ekki hvað síst sko ef það tekst ekki þá verður eiginlega að reyna að ná til þessara krakka sem eru þarna á þessum framhaldsskólaaldri. Ég tel að það sé mjög mikilvægt og geri alveg ráð fyrir því og veit að sóttvarnayfirvöld eru jákvæð fyrir því að reyna eins og hægt er,“ segir Lárus Blöndal, forseti ÍSÍ.

„Þannig að við gerum ráð fyrir því að flest okkar afreksfólk, sem er að keppa í einstaklingsgreinum til að mynda, komist þar inn, og líka geri ég ráð fyrir því að það eru hérna til dæmis veit ég nokkrir einstaklingar sem eru í þessum stóra hópi hjá HSÍ og þeir ættu að geta fengið þessa undanþágu líka.“

„Þannig að það er, hérna, þetta er alla vega viðleitni og er bara jákvætt að geta komið þessu áfram. En hins vegar náttúrulega eru menn að horfa til þess að þessar liðsíþróttir, að menn geti stundað þær hérna til að geta verið samkeppnishæfir á alþjóðlegum mótum á næsta ári. En það er, hérna, vonandi styttist í að það verði hægt.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×