Skoðun

Konur í nýsköpun

Huld Magnúsdóttir skrifar

Ísland þarf á frumkvöðlum að halda. Frumkvöðlum sem stofna fyrirtæki sem vaxa, skapa ný störf og þróa sjálfbært samfélag. Það sama á við um hin Norðurlöndin. Þannig ná þau enn meiri árangri til lengri tíma.

Þó oft sé litið til Norðurlandanna sem alþjóðlegrar fyrirmyndar þegar kemur að jafnrétti kynjanna, er svigrúm til úrbóta þegar kemur að frumkvöðlastarfi kvenna og þátttöku þeirra í stofnun og stjórnun fyrirtækja. Staðreyndin er sú að næstum jafn margar konur og karlar vilja gerast frumkvöðlar. Engu að síður er hlutur kvenkyns frumkvöðla á Norðurlöndunum lítill og konur eiga erfiðara með að fjármagna fyrirtæki sín en karlar. Þannig er sköpunargleði kvenna og frumkvöðlastarfsemi vannýtt uppspretta hagvaxtar og atvinnusköpunar sem ætti að þróa frekar. Til að missa ekki frá okkur þekkingu og kraft sem myndi gagnast samfélaginu í heild sinni þurfum við að efla til muna þátttöku kvenna í nýsköpun. Það er því ekki einkamál kvenna að þær séu ekki jafnir þátttakendur í þessum þætti samfélagsins.

Frásagnir og fyrirmyndir

Til að leggja sitt á vogaskálarnar býður Nýsköpunarnefnd FKA til fundar um konur í nýsköpun. Fundurinn er haldinn í samstarfi við Nýsköpunarvikuna og verður streymt beint á visir.is

Tilgangur fundarins er að vekja athygli á konum í nýsköpun og vegferð þeirra úr mismunandi áttum. Þrjár af þeim fjórum konum sem flytja erindi munu deila reynslu sinni af því að stofna fyrirtæki úr margbreytilegu umhverfi og bakgrunni og segja frá vegferð sinni í fyrirtækjarekstri og nýsköpun. Þá verða kynntar niðurstöður könnunar á stöðu kvenna í nýsköpun sem gerð var fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og fjallað um gerð hlaðvarpa um konur í nýsköpun. Með þessu framtaki vill Nýsköpunarnefnd FKA varpa ljósi á mikilvægi kvenna í nýsköpun og um leið hvetja konur til að láta að sér kveða á vettvangi nýsköpunar og skapa þannig verðmæti fyrir sig og sína og samfélagið í heild.

Samfélagið nýtur góðs af nýsköpun

Margrét Vilborg Bjarnadóttir, stofnandi og stjórnarformaður PayAnalytics og dósent við University of Maryland mun fjalla um vegferðina frá stærðfræðilíkani yfir á alþjóðamarkað. Ragna Sara Jónsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri hönnunarmerkisins Fólk, mun í erindi sínu hvetja konur til að breytum heiminum frá hugmynd til alþjóðlegs rekstrar. Rakel Garðarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri húð- og hárvöruframleiðandans Verandi veitir góð ráð undir yfirskriftinni: Ekki gera sömu mistök og ég - Áskoranir við að koma vörum á markað. Að lokum mun Alma Dóra Ríkarðsdóttir, viðskiptafræðingur og meistaranemi í kynjafræði fjalla um verkefni sem hún hefur unnið fyrir atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið um konur í nýsköpun. Erindi hennar heitir: Hindranir, valdefling og framtíðin í nýsköpunarumhverfinu á Íslandi.

Það er mikils virði fyrir alla þegar frumkvöðlar miðla af reynslu sinni, fara yfir mistökin sem gerð hafa verið, áskoranirnar og ekki síður sigrana og velgengnina. Allt er þetta liður í áherslum Nýsköpunarnefndar FKA að finna leiðir til aukinnar þátttöku kvenna í nýsköpun. Samfélagið í heild nýtur góðs af því þegar mannauður, menntun og reynsla er nýtt með sem bestum hætti.

Við hvetjum alla áhugasama um nýsköpun til að fylgjast með viðburðinum á visir.is, þriðjudaginn 6.okt. kl. 16-18.

Höfundur er framkvæmdastjóri Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins og formaður Nýsköpunarnefndar FKA.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Bestu árin

Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Sigríður Gísladóttir skrifar

Sjá meira


×