Umfjöllun: Grótta - KA 2-4 | Óvænt markaveisla á Seltjarnanesi

Ísak Hallmundarson skrifar
visir-img
Foto: hag / Haraldur Guðjónsson/Ljósmynd/hag

KA vann góðan útisigur á Gróttu á Seltjarnarnesi í Pepsi Max deild karla í dag. Lokatölur 4-2 sigur KA.

Hallgrímur Mar Steingrímsson fór á kostum í leiknum og kom Akureyringum yfir á 26. mínútu með glæsilegu skoti úr teignum yfir Hákon Rafn í marki Gróttu.

KA voru mun betri í fyrri hálfleik og undir lok hálfleiksins bætti Hallgrímur við öðru marki sínu eftir góða sendingu frá Bjarna Aðalsteinssyni.

Lítið gerðist þar til á 69. mínútu, þá fengu heimamenn vítaspyrnu eftir að Kristijan Jajalo braut á Karli Friðleifi Gunnarssyni. Karl fór sjálfur á punktinn og skoraði.

Steinþór Freyr Þorsteinsson kom KA í 3-1 á 76. mínútu og á 90. mínútu fengu Akureyringar vítaspyrnu. Þá fór Hallgrímur Mar á punktinn og fullkomnaði þrennu sína. Kieran McGrath náði síðan inn sárabótamarki fyrir heimamenn þegar hann skoraði með skalla eftir horn. Lokatölur 4-2 sigur KA.

Af hverju vann KA?

Þeir voru bara miklu betri allan leikinn og þetta var í raun bara spurning hversu stór sigurinn yrði. KA er með marga gæðaleikmenn og liðið sýndi sínar réttu hliðar í dag.

Hverjir stóðu upp úr?

Hallgrímur Mar var að sjálfsögðu maður leiksins, skoraði þrennu og hefði getað skorað fleiri, það var kominn tími á að hann ætti einn svona leik. Bjarni Aðalsteinsson átti einnig góðan leik, lagði upp tvö mörk og var líflegur frammi. Annars átti KA-liðið í heild góðan leik.

Hvað gerist næst?

Grótta situr sem fastast í næstneðsta sæti eftir leikinn og er liðið átta stigum frá öruggu sæti þegar fimm umferðir eru eftir. KA er í 9. sæti eftir leikinn, ellefu stigum fyrir ofan fallsæti og því má segja að liðið sé formlega búið að bjarga sér frá falli. Í næstu umferð fer KA í heimsókn í Smárann og mætir Blikum, en það er núna á fimmtudaginn. Grótta mætir toppliði Vals á útivelli næsta sunnudag eftir viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira