Innlent

Hafnar­fjörður róar for­eldra og frestar árs­há­tíð í sam­ráði við al­manna­varnir

Eiður Þór Árnason skrifar
Ákvörðun var tekin um þetta í morgun.
Ákvörðun var tekin um þetta í morgun. Vísir/vilhelm

Ákveðið hefur verið að fresta árshátíð Hafnarfjarðarbæjar sem til stóð að halda í kvöld vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Fyrirhugað samkomuhald bæjarstarfsmanna hafði sætt nokkurri gagnrýni og þá einkum frá foreldrum langveikra barna sem nýta sér þjónustu sveitarfélagsins.

Ákvörðunin var tekin eftir fund bæjaryfirvalda með almannavörnum nú í morgun og verður árshátíðinni frestað um óákveðinn tíma, er fram kemur í tilkynningu á vef bæjarins.

Sjá einnig: Veislustjórar á köldum klaka vegna kórónuveirunnar

„Fulltrúar almannavarna hafa að höfðu samráði við sóttvarnalækni metið það svo að starfsfólk sem vinnur með og sinnir einstaklingum sem falla undir skilgreiningu á viðkvæmum hópum ætti að forðast að taka þátt í fjölmennum mannsöfnuðum.“

Er þetta einnig sagt eiga við starfsfólk sem sinni lykilinnviðum og þjónustu sem þarf að vera órofin á neyðarstigi almannavarna.

„Slíkt á við um marga starfsmenn sveitarfélaga, þar með talið miðlægrar stjórnsýslu og ráðhúss,“ segir í tilkynningunni.

Fjölda viðburða frestað

Ríkislögreglustjóri lýsti í gær yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni vegna kórónuveirunnar í kjölfar þess að fyrstu innanlandssmitin voru staðfest í gær.

Fjölmörgum fjöldasamkomum hefur verið frestað undanfarna daga vegna útbreiðslu kórónuveirunnar. Til greina kemur að efna til samkomubanns hér á landi til að sporna við frekari útbreiðslu hennar að sögn yfirvalda. Óljóst er hvernig því yrði háttað ef til þess kæmi.

Höfðu áhyggjur af fólki með undirliggjandi sjúkdóma

Aðalheiður Ósk Þorsteinsdóttir, íbúi í Hafnarfirði, tjáði sig um málið í Facebook hópnum Norðurbærinn minn í gær og benti á að starfsfólk bæjarins vinni með börnum og eldri borgurum.

„Sem foreldri langveiks barns og annars með mjög mikinn astma þá finnst mér það mjög vanhugsað að fresta ekki árshátíð bæjarins og þá sérstaklega í ljósi þess að nú eru fyrstu smit að greinast innanlands á milli fólks.“

Áslaug Ólöf Kolbeinsdóttir, sem á langveika dóttur, gagnrýndi það sömuleiðis í gærkvöldi að þá hafi enn staðið til að halda árshátíðina.

„Þegar þessi orð eru skrifuð hafa 4 smit orðið á milli manna hér á landi, manna sem ekki hafa verið á hættusvæðum erlendis. Okkur finnst það ótrúlegt ábyrgðarleysi að stefna saman öllum kennurum og starfsfólki þeirra veikbyggðustu íbúa bæjarins saman á stóran viðburð eins og staðan er í dag.“

Þá höfðu sumir íbúar lýst yfir áhyggjum sínum af því að þjónusta bæjarins gæti lamast ef allt færi á versta veg og stórum hluta starfsmanna væri gert að fara í sóttkví.


Tengdar fréttir

Fjölmennu Nettómóti frestað vegna neyðarstigs

Mótsnefnd Nettómótsins í körfubolta, þar sem yfir 1.300 börn og unglingar voru skráð til keppni, ákvað nú síðdegis að fresta mótinu um ótilgreindan tíma vegna kórónuveirunnar.

Læknar halda sig frá samkomum

Læknafélag Íslands hefur frestað fundum sem fara áttu fram á vegum félagsins í kvöld og á morgun vegna kórónuveirunnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×