Innlent

Vetrar­færð í öllum lands­hlutum

Atli Ísleifsson skrifar
Förum varlega í umferðinni.
Förum varlega í umferðinni. vísir/vilhelm

Vetrarfærð er í öllum landshlutum og vegir víða ófærir eða lokaðir eftir nóttina.

Á vef Vegagerðarinnar kemur fram að þungfært sé á Bröttubrekku og þæfingur í Svínadal. Verið sé að kanna ástand á öðrum leiðum.

Ófært og stórhríð er á Vatnsskarði eystra og þungfært á Fjarðarheiði. Flughálka er á nokkrum leiðum í kringum Egilsstaði en er verið að kanna ástand á nokkrum leiðum. Þæfingsfærð eða ófært á flestum leiðum og verið að kanna ástand. 

Vegurinn um Fróðárheiði er lokaður, og á Flateyrarvegi, Súðavíkurhlíð, Siglufjarðarvegi og Ólafsfjarðarmúla er óvissustig vegna snjóflóðahættu.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×