Sport

Myndin sem lætur Söru líta út eins og töfrakonu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Sara Sigmundsdóttir er svo öflug með lyftingarstöngina að hún getur látið hana svífa í lausu lofti.
Sara Sigmundsdóttir er svo öflug með lyftingarstöngina að hún getur látið hana svífa í lausu lofti. Mynd/Fésbókarsíða Dubai CrossFit Championship

Sara Sigmundsdóttir er ótrúleg íþróttakona en mynd frá Wodapalooza CrossFit mótinu lætur hana hreinlega líta út eins og töfrakonu líka.

Sara vann glæsilegan sigur í „Miami Heat“ greininni á Wodapalooza CrossFit mótinu en hún kláraði hana á einni mínútu og 17 sekúndum. Þetta var eina greinin sem Sara vann á mótinu og á endanum var Suðurnesjamærin að sætta sig við annað sætið í mótinu á eftir Tiu-Clair Toomey.

Það réð aftur á móti enginn við hana í greininni sem var kannski skírð eftir NBA-liði Miami borgar. Sara var sjö sekúndum á undan næstu konu og heilum sextán sekúndum á undan Tiu-Clair Toomey sem kláraði á einni mínútu og 33 sekúndum.

Á umræddri „töframynd“ sést Sara vera að koma í mark í „Miami Heat“ en greinin endaði á framstigi með 68 kílóa stöng. Sara kom á fleygiferð í mark en stöngin hafði þyngst í hverri umferð.

Sara er búin að klára síðasta framstigið en var ekkert að eyða tíma í að bíða eftir að stöngin færi í jörðina heldur teygir sig í lokahnappinn.

Ljósmyndarinn fangar þessa stund þar sem lítur út fyrir að þessi 68 kílóa stöng sé í lausu lofti.

Það er því ekkert skrýtið að þeir sem tjá sig um myndina af Söru vitni bæði í Holmes og Harry Potter.

„Vissi ekki að Hogwarts-skólinn væri í CrossFit,“ skrifar einn og „Wingardium Leviosa,“ skrifar annar. Sá fyrsti skrifaði aftur á móti „That’s levitation Holmes.”

Meira en þrettán þúsund og fimm hundruð manns hafa sagt vera hrifin af myndinni á Instagram síðu Wodapalooza.  

Þessa mögnuðu mynd má sjá hér fyrir neðan.



 
 
 
View this post on Instagram

That final rep feeling during "Miami Heat"

A post shared by Wodapalooza (@wodapalooza) on Feb 26, 2020 at 3:00pm PST




Tengdar fréttir

Sara eftir Wodapalooza: Veit nákvæmlega hvað ég þarf að gera núna

Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir þurfti að sætta sig við annað sætið á eftir heimsmeistaranum Tiu-Clair Toomey á Wodapalooza CrossFit mótinu um helgina en það virðist hafa aðeins verið bensín á tankinn að tapa fyrir Ástralanum öfluga.

Sara er enn með forystu á Tiu á peningalistanum

Íslenska CrossFit konan Sara Sigmundsdóttir hefur unnið sér inn mestan pening til þessa á keppnistímabilinu af öllu CrossFit fólki heimsins. Skiptir þar engu hvort um er að ræða karla eða konur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×