Lífið

Vitnaði í bróður sinn heitinn í til­finninga­þrunginni ræðu

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Joaquin Phoenix tekur við Óskarnum í kvöld.
Joaquin Phoenix tekur við Óskarnum í kvöld. Vísir/getty

Leikarinn Joaquin Phoenix, sem hreppti í nótt Óskarinn fyrir besta leik í aðalhlutverki fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Joker, lagði áherslu á dýravelferð og vitnaði í textabrot eftir bróður sinn heitinn í þakkarræðu sinni.

Phoenix hefur sópað að sér verðlaunum á hinum ýmsu verðlaunahátíðum síðustu misseri fyrir leik sinn í Joker, þar sem hann fer með titilhlutverkið. Phoenix hefur einmitt ítrekað notað tækifærið og vakið athygli á málstað sem honum er umhugað um í þakkarræðum sínum. Á BAFTA-verðlaununum lagið Phoenix til að mynda áherslu á kynþáttafordóma og einsleitan hóp þeirra sem tilnefndir voru.

Sjá einnig: Vil­hjálmur og Phoenix þung­orðir í BAFTA-ræðum sínum

Engin undantekning var þar á í nótt en Phoenix kom aftur inn á kynþáttafordóma, sem og kvenhatur í kvikmyndabransanum, auk þess sem honum var tíðrætt um ný tækifæri.

„En ég held að stærsta gjöfin sem þau [forréttindi] hafa gefið mér, og mörgum okkar inni í þessu herbergi, sé tækifæri til að tala máli hinna raddlausu. Ég hef verið að hugsa mjög um sum af alvarlegustu málunum sem við tökumst nú á við í sameiningu,“ sagði Phoenix.

„Ég held að við höfum misst sambandið við hinn náttúrulega heim. […] Við förum út í hinn náttúrulega heim og við förum ránshendi um auðlendir hans. Okkur finnst við eiga rétt á því að sæða kú og þegar hún ber þá rænum við af henni barninu, jafnvel þótt örvæntinaróp hennar séu óyggjandi. Og svo tökum við mjólk hennar, sem ætluð er kálfi hennar, og setjum hana í kaffið okkar og morgunkornið. Ég held að við óttumst hugmyndina um breytingar vegna þess að við höldum að við þurfum að færa fórnir þeim til handa. En mannskepnan er, upp á sitt besta, svo hugvitssöm, skapandi og snjöll.“

Þá sagðist Phoenix uppfullur þakklætis og í lok ræðunnar mátti heyra rödd hans bresta þegar hann fór með textabrot úr smiðju bróður síns heitins, River Phoenix. Hann lést árið 1993, 23 ára að aldri, úr of stórum skammti eiturlyfja.

„Hann var sautján ára, bróðir minn, þegar hann samdi þetta textabrot. Hann sagði: „Hlauptu til bjargar með ást og friður mun fylgja“.“

Ræðu Phoenix má sjá í heild hér að neðan.

Klippa: Joaquin Phoenix vinnur Óskar





Fleiri fréttir

Sjá meira


×