Skoðun

Fé­lag heyrnar­lausra sex­tíu ára

Hervör Guðjónsdóttir skrifar

Ég var 28 ára með fyrsta barnið innan við ársgamalt þegar stofan á heimili okkar Guðmundar K. Egilssonar fylltist af fólki. Heyrnarlausum vinum mínum. Þá var ég búin að baka fáeinar kökur og stafli af pönnukökum beið gestanna. Þeir voru samt eiginlega ekki lengur gestur því við höfðum í rauninni breytt heimili okkar í félagsheimili fyrir heyrnarlausa. En auðvitað kom ekki annað til greina en að bjóða upp á kaffi og meðlæti því þessar samkomur okkar heima í stofu áttu það til að dragast á langinn. Guðmundur kom oft seint heim úr vinnu og fór þá strax að fá lánaða stóla og undirbúa fundina því við vorum ekki að hittast til þess eins að ræða um daginn og veginn. Ég minnist þess þegar ég kalla fram í hugann myndina af vinum mínum í stofunni heima hvað það var mikil ástríða í umræðunni, margar hendur á lofti þar sem allir tala táknmál, og allir höfðu eitthvað gott fram að leggja. Við vorum nefnilega að ræða um formlega stofnun Félags heyrnarlausra.

Í dag, 11. febrúar, eru sextíu ár liðin frá því félagið var stofnað.

Ástríðan á undirbúningstímanum spratt upp af einskærri réttlætiskennd. Baráttumál okkar voru mörg og brýn, við höfum lakari stöðu en aðrir, höfðum á tilfinningunni að við værum litin hornauga. Við áttum ekkert húsnæði, engan samastað annan en heimili okkar eða foreldra okkar. Við vissum að tilraun til að stofna formlegt félag hafði átta árum áður farið út um þúfur og ætluðum ekki að láta það endurtaka sig. Við fengum Brand heitinn Jónsson skólastjóra Málleysingjaskólans - eins og hann hét þá - til liðs við okkur, til að vinna með okkur að gerð fyrstu laganna og undirbúa stofnfundinn sem haldinn var í skólanum við Stakkholt.

Á fundinn komu 33 einstaklingar sem allir gengu í félagið. Við ákváðum nafnið á félaginu úr hópi sex tillagna, samþykktum fyrstu lög félagsins og skipuðum í stjórn. Þegar ég kalla fram minningar um stofnfundinn fyllist ég stolti. Við vorum svo samtaka og sterk! Félagið reyndist vera okkur mikils virði, rödd okkar varð miklu sterkari og smám saman hefur staða okkar í samfélaginu batnað. Viðurkenning á táknmálinu var ártugum fjarri þegar Félag heyrnarlausra varð til, túlkaþjónustuna var engin, við höfðum ekki einu sinni rétt til þess að taka bílpróf! Það var reyndar eitt af fyrstu baráttumálum félagins og náðist í gegnum Alþingi fjórum árum eftir stofnun félagsins með samþykkt á breytingum á umferðarlögum. Ég var í hópi þriggja fyrstu sem luku bílprófi og fyrsta konan.

Ég óska félaginu mínu innilega til hamingju á þessum tímamótum. Megi því auðnast að halda uppi merki heyrnarlausra um ókomna tíð. 

Höfundur er fyrrverandi formaður Félags heyrnarlausra.




Skoðun

Skoðun

Saman gegn ríkisofbeldi

Vilhjálmur Yngvi Hjálmarsson,Örlygur Steinar Arnaldsson,Sigurhjörtur Pálmason,Simon Valentin Hirt,Kristbjörg Arna E. Þorvaldsdóttir,Ari Logn,Margrét Rut Eddudóttir skrifar

Sjá meira


×