Innlent

Dönsuðu fyrir baráttunni gegn stafrænu kynferðisofbeldi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fjölmargar söngkonur koma fram í Hörpu í dag.
Fjölmargar söngkonur koma fram í Hörpu í dag.

Dansbyltingin Milljarður rís á vegum UN Women á Íslandi fer fram í Hörpu í dag og verður í beinni sjónvarpsútsendingu á Vísi. Dansinn dunar frá klukkan 12:15 og stendur byltingin yfir í um 45 mínútur.

Reiknað er með að nokkur þúsund Íslendingar og gestir stígi trylltan dans úti um allt land til að mótmæla ofbeldi gegn konum um allan heim. Um er að ræða alheimsdansbyltingu. Viðburðurinn átti að fara fram á föstudaginn, líkt og víðast hvar í heiminum, en var frestað vegna óveðurs sem gekk yfir landið.

Bein útsending verður frá Hörpu á Vísi og eiga því allir, hvort sem þeir eru fastir í vinnu eða eiga ekki heimangengt af öðrum ástæðum, kost á því að geta hækkað græjurnar í botn og stigið dans. Ókeypis er í Hörpu og sömuleiðis í bílastæði hússins. UN Women hvetur fólk til að koma gangandi eða nota almenningssamgöngur.

DJ Margeir er tónlistarstjóri í ár eins og fyrri ár og reiðir fram glæsta tónlistarveislu í samstarfi við úrvalslið íslenskra tónlistarkvenna. Fram koma þær Elísabet Ormslev, Hera Björk, Matthildur, Sigga Beinteins, Sigríður Thorlacius, Sólborg Guðbrands og Tara Mobee.

Ein af hverjum þremur konum í heiminum er beitt kynbundnu ofbeldi - þar er Ísland engin untantekning. Annan hvern dag leitar kona á landsspítalann vegna heimilisofbeldis samkvæmt rannsókn sem gerð var í fyrra. Með því að mæta og dansa með heimsbyggðinni gefur þú ofbeldi fingurinn í eitt skipti fyrir öll.

Þátttakendur eru hvattir til að taka myndir og myndbönd og birta á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #milljarðurris.

Milljarður rís fer víðar fram en í Hörpu á sama tíma. Einnig verður dansað í 88 Húsinu í Reykjanesbæ, Kvikunni í Grindavík, Menntaskólanum á Egilsstöðum, Félagsheimilinu á Hólmavík og Íþróttamiðstöðinni á Djúpavík.

Þetta er í áttunda sinn sem fólk frá yfir 200 löndum mæta og dansa fyrir hugrökkum konum um allan heim sem berjast gegn mótlæti, óréttlæti og misbeitingu í daglegu lífi.

Uppfært klukkan 13:35

Útsendingunni er lokið en upptöku má sjá hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×