Innlent

Ráðningu nýs ríkislögreglustjóra mögulega frestað

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Stefnt er að því að setja í embætti ríkislögreglustjóra fljótlega.
Stefnt er að því að setja í embætti ríkislögreglustjóra fljótlega. Vísir/Vilhelm

Hæfisnefnd fer nú yfir umsækjendur í embætti ríkislögreglustjóra en stefnt hefur verið að því að setja í stöðuna 1. mars næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum sem fréttastofa hefur aflað eru líkur á að það gæti frestast og gæti orðið allt að tveimur vikum seinna.

Dómsmálaráðuneytið vinnur að því að ráða í þrjár mikilvægar embættisstöður og átti að setja í þær allar 1. mars. Það er lögreglustjóra á Austurlandi, embætti sýslumanns í Vestmannaeyjum og í embætti ríkislögreglustjóra. Sú ráðning er samkvæmt upplýsingum í algjörum forgangi innan ráðuneytisins og því líkur á að setning í embætti lögreglustjórans á Austurlandi og í embætti sýslumannsins í Vestmannaeyjum frestist um einhvern tíma.

Sjö sóttu um stöðu ríkislögreglustjóra eftir að Haraldur Johannessen lét af embætti um áramótin. Sigríður Björk Guðjónsdóttir, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu, Halla Bergþóra Björnsdóttir, lögreglustjóri á Norðurlandi eystra. Grímur Grímsson, tengslafulltrúi Íslands hjá Europol. Páll Winkel, fangelsismálastjóri. Kristín Jóhannesdóttir, lögfræðingur, Logi Kjartansson, lögfræðingur og Arnar Ágústsson, öryggisvörður.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra og Kjartan Þorkelsson, settur ríkislögreglustjóri á fyrsta fundi rögregluráðs.Vísir/Jóhann K.

Hæfisnefnd skilar lista á næstu dögum

Hæfisnefnd hefur ekki skilað meðmælalista til dómsmálaráðherra en samkvæmt upplýsingum fréttastofu gæti það gerst fljótlega. Dómsmálaráðherra mun svo taka viðtöl við umsækjendur.

Frá því Haraldur Johannessen, lét af embætti hefur Kjartan Þorkelsson, lögreglustjóri á Suðurlandi, gengt stöðu ríkislögreglustjóra tímabundið og átti að vera til 1. mars næstkomandi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, skipaði hæfisnefnd um skipan nýs ríkislögreglustjóra. Í nefndinni eiga sæti Ragnhildur Helgadóttir, lagaprófessor við Háskóla í Reykjavík, Björn Rögnvaldsson, sérfræðingur hjá kjara- og mannauðssýslu ríkisins og Andri Árnason, hæstaréttarlögmaður, og er hann formaður nefndarinnar. Andri sagði í samtali við fréttastofu á ráðningarferlið enn í vinnslu og vísaði að öðru leiti til dómsmálaráðuneytisins um frekari upplýsingar.

Á sama tíma og staða ríkislögreglustóra var auglýst var jafnframt auglýst eftir lögreglustjóra á Austurland en Inger Linda Jónsdóttir, lætur af embætti um næstu mánaðamót sökum aldurs. Hún hefur verið lögreglustjóri á Austurlandi frá árinu 2014.

Þá var líka auglýst eftir sýslumanni í Vestmannaeyjum. Fimm konur sóttu um stöðuna. Sæunn Magnúsdóttir, staðgengill sýslumannsins í Vestmannaeyjum. Aníta Óðinsdóttir, lögmaður. Arndís Soffía Sigurðardóttir, staðgengill sýslumannsins á Suðurlandi. Guðbjörg Anna Bergsdóttir, lögmaður og Ragnheiður Jónsdóttir, lögmaður.

 


Tengdar fréttir

Tómlegt á skrifstofu setts ríkislögreglustjóra

Kjartan Þorkelsson tók við sem settur Ríkislögreglustjóri um áramót. Kjartan mætti sinn fyrsta dag til vinnu hjá embættinu í dag. Samhliða þessum breytingum tóku tímabundið til starfa nýr vararíkislögreglustjóri og yfirlögregluþjónn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×