Innlent

Ráðist á ungan mann í Kópa­vogi í gær­kvöldi

Atli Ísleifsson skrifar
Maðurinn fann til í andliti og var með kúlu á hnakka að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Maðurinn fann til í andliti og var með kúlu á hnakka að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni. vísir/vilhelm

Ungur maður varð fyrir árás í Kópavogi um klukkan 20:30 í gærkvöldi. Í dagbók lögreglu segir að hann hafi sagt tvo hafa ráðist á sig.

Maðurinn fann til í andliti og var með kúlu á hnakka, en árásarmenn höfðu flúið vettvang þegar lögreglu bar að, að því er segir í skeyti lögreglu.

Þá var tvívegis tilkynnt um innbrot í bíla í gærkvöldi, fyrst á Miðbakka við Reykjavíkurhöfn um klukkan 19:30 þar sem verðmætum var stolið og síðan örskömmu seinna á Flugvallarvegi. Þar var hliðarrúða í bíl brotin og verðmætum einnig stolið en þjófarnir virðast í báðum tilfellum hafa komist undan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×