Innlent

Telur að pall­bíl hafi verið ekið yfir leiði í Mos­fells­kirkju­garði

Vésteinn Örn Pétursson og Eiður Þór Árnason skrifa
Helgi telur að atvikið hafi átt sér stað einhvern tímann frá því í gærkvöldi og þar til snemma í morgun.
Helgi telur að atvikið hafi átt sér stað einhvern tímann frá því í gærkvöldi og þar til snemma í morgun. Helgi Þór Eiríksson

Slæm aðkoma var í Mosfellskirkjugarði í Mosfellsbæ í dag en svo virðist sem að ökutæki hafi verið ekið utan vegslóða og yfir leiði.

Helgi Þór Eiríksson, sem reynir að vitja leiðis móður sinnar vikulega með föður sínum, segir að aðkoman í garðinum hafi ekki verið góð þegar hann kom þangað um hádegisbil í dag. Hann segir leiðinlegt að horfa upp á slíkt en segir aðkomuna í garðinum oft vera misjafna. Oft sé illa gengið um garðinn auk þess sem hann sé oftar en ekki illa hirtur að hans mati.

„Svo kemur eitthvað svona upp á. Bílar sækja í að keyra þarna upp í gegnum hliðið.“

Helgi Þór Eiríksson

Bifreiðin líklega lent í erfiðleikum

Sjálfur segist hann skilja að ekki allir eigi auðvelt með gang og vilji því keyra inn í garðinn.

„Þarna tók ég eftir því að viðkomandi bíll hafði ekki keyrt eftir veginum heldur yfir garðinn, og yfir gróður sem var búið að setja þarna.“

Hann hafi síðan séð för eftir bílinn sem hafi legið á milli tveggja leiða í garðinum en Helgi telur að atvikið hafi átt sér stað einhvern tímann frá því í gærkvöldi og þar til snemma í morgun.

„Svo sá ég rétt við leiði móður minnar að þar voru mjög slæm för, rétt við leiðin. Þá sá ég að bíllinn hafði lent í einhverju veseni.“

Brotinu stillt upp við leiðið

Helgi segir greinilegt að um pallbíl hafi verið að ræða, þar sem för afturdekkja hafi verið tvöföld.

„Við löbbuðum bara eftir förunum og til baka. Þá sé ég betur að það er búið að keyra yfir einhver leiði,“ segir Helgi.

Hann segist þá einnig hafa séð að búið væri að keyra niður kross við eitt leiðanna í garðinum.

„Þá var greinilega búið að taka krossinn sem brotnaði af, og stilla honum upp á brotinu.“

Forsvarsmenn kirkjugarðsins kusu að tjá sig ekki um málið að svo stöddu þegar eftir því var leitað.

Helgi Þór Eiríksson



Fleiri fréttir

Sjá meira


×