Innlent

Sau­tján stiga hiti mældist á Seyðis­firði í nótt

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Frá Seyðisfirði.
Frá Seyðisfirði. Vísir/Jói K.

Liðna nótt hvessti úr suðri og víða er hvassviðri eða stormur um vestan- og norðanvert landið. Gular stormviðvaranir eru í gildi á Breiðafirði, Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra fram eftir degi. Gular asahlákuviðvaranir eru jafnframt í gildi um allt land vegna mikilla leysinga fram að hádegi.

Hlýju lofti úr suðri fylgir rigning eða súld en þó verður þurrt norðan- og austanlands. Búast má við að á þeim slóðum slái hnjúkaþey sums staðar niður. Hæsti hiti sem mældist síðustu nótt voru tæp sautján stig á Seyðisfirði.

Samkvæmt upplýsingum frá veðurfræðingi hjá Veðurstofu Íslands var hitinn nákvæmlega 16,5 stig og mældist um klukkan fjögur í nótt. Ekki skipti máli við þessar aðstæður hvort um nótt eða dag sé að ræða – sólin stuðli þar lítið að hita.

Ekki erum met að ræða en hæsti hiti sem hefur mælst í febrúar er 19,1 stig á Eyjabökkum 12. þess mánaðar árið 2017. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að ekki sé útilokað að það met verði slegið síðar í dag. Eftir hádegi fer svo að draga úr vindi og úrkomu og byrjar að kólna.

Ásþungi takmarkaður við tíu tonn

Skólaakstur fellur niður á milli Hellissands og Ólafsvíkur nú í morgunsárið vegna veðurs. Í tilkynningu frá Grunnskóla Snæfellsbæjar segir að nemendur og starfsfólk skuli mæta á þá starfsstöð sem næst er þeirra heimili.

Ákvörðun um akstur skólabíls verður endurskoðuð klukkan tíu. Í tilkynningu segir að kennsla sé að jafnaði ekki felld niður þótt veður sé slæmt. Það sé hins vegar á valdi forráðamanna að meta hvort rétt sé að senda nemendur í skólann.

Þá varar Vegagerðin vegfarendur við miklum holumyndunum á vegum vegna mikilla leysinga og hlýnandi veðurs. Gott sé að hafa það í huga þegar ekið er af stað.

Þá verður ásþungi takmarkaður við tíu tonn á öllum vegum í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu, nema á hringvegi milli Reykjavíkur og Selfoss, vegna hættu á slitlagsskemmdum. Takmörkun þessi tekur gildi klukkan tíu í dag, fimmtudaginn 6. febrúar.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Vaxandi suðaustanátt og rigning, 10-18 m/s síðdegis, en hægari vindur og þurrt norðanlands. Hiti 4 til 10 stig.



Á laugardag:

Útlit fyrir suðlæga átt, víða 10-15 m/s og snjókomu, en rigingu á láglendi um kvöldið. Hægari vindur og þurrt um norðanvert landið. Hiti kringum frostmark.



Á sunnudag:

Suðlæg eða breytileg átt 3-8 og slydda á köflum, en þurrt norðan- og austanlands, og norðaustan 8-15 með snjókomu á Vestfjörðum. Hiti nálægt frostmarki en frost 3 til 8 stig um landið norðanvert.



Á mánudag og þriðjudag:

Norðlæg átt og snjókoma með köflum, en þurrt sunnan- og vestanlands. Kalt í veðri.



Á miðvikudag:

Austlæg átt og víða dálítil snjókoma. Áfram kalt í veðri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×