Körfubolti

Doncic nærri þre­faldri tvennu í naumu tapi gegn LA Clippers

Anton Ingi Leifsson skrifar
Luka Doncic í baráttunni í nótt.
Luka Doncic í baráttunni í nótt. vísir/getty

LA Clippers vann sinn fjórða sigurleik í röð í nótt er liðið hafði betur gegn Dallas í hörkuleik, 110-107.

Jafnt var í stöðunni 96-96 en þá kom góður kafli hjá Clippers og þeir breyttu stöðunni í 105-98.

Það bil náðu heimamenn ekki að brúa og mikilvægur Clippers staðreynd en liðið er með 70,5% sigurhlutfall í vetur.







Kawhi Leonard skoraði 36 stig og tók ellefu fráköst í liði Clippers og Landry Shamet bætti við átján stigum.

Enn eina ferðina var Luka Doncic bestur í liði Dallas. Hann skoraði 36 stig, tók tíu fráköst og gaf níu stoðsendingar.



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×