Viðskipti innlent

Lítil hækkun í­búð­averðs 2019 í sögu­legu ljósi

Atli Ísleifsson skrifar
Framan af var árið 2019 nokkuð tíðindalítið á fasteignamarkaði.
Framan af var árið 2019 nokkuð tíðindalítið á fasteignamarkaði. vísir/vilhelm

Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 3,5 prósent milli ára í fyrra. Raunverð hækkaði um 0,9 prósent og hefur stöðugleiki á íbúðamarkaði ekki verið meiri í áraraðir.

Þetta kemur fram í nýrri Hagsjá Landsbankans. Þar segir að hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hafi ekki mælst jafn lítil frá árinu 1997, ef frá eru talin árin eftir hrun, 2009 og 2010, þar sem íbúðaverð lækkaði milli ára.

„Raunverð íbúða stóð nánast í stað milli ára. Það hækkaði aðeins um 0,9% sem er einnig minnsta hækkun á raunverði milli ára síðan 1997. Raunverð lækkaði þó árin 2001 og 2002 og eins 2008-2010.

Framan af var árið 2019 nokkuð tíðindalítið á fasteignamarkaði. Mánaðarleg viðskipti með íbúðarhúsnæði mældust sífellt færri en í samsvarandi mánuði árið á undan, allt frá mars og fram til september. Viðskipti virtust síðan taka verulega við sér í október þegar 60% fleiri íbúðir seldust en í október árið áður.

Ekki er vitað hvað olli þessari aukningu. Það má vera að óvissunni sem ríkti á vormánuðum hafi verið létt. Sú óvissa snéri meðal annars að því hvaða áhrif gjaldþrot WOW air myndi hafa á hagkerfið, eins voru undirritaðir kjarasamningar þar sem umfangsmiklum aðgerðum var lofað á húsnæðismarkaði. Yfirlýsingar, sem ekki voru komnar til framkvæmda, gætu hafa skapað ákveðna biðstöðu, að minnsta kosti fyrst um sinn,“ segir á vef Landsbankans.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×