Lífið

Manuela og Jón Ey­þór snúa aftur í loka­þættinum vegna mis­takanna

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Jón Eyþór og Manuela í fjörugum dansi í Allir geta dansað 10. janúar síðastliðinn.
Jón Eyþór og Manuela í fjörugum dansi í Allir geta dansað 10. janúar síðastliðinn. Vísir/M. Flóvent

Manuela Ósk Harðardóttir og Jón Eyþór Gottskálksson, sem duttu út úr þættinum Allir geta dansað á Stöð 2 á föstudagskvöld, munu fá að taka þátt í lokaþættinum um næstu helgi. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Stöð 2. Í samantekt dansanna á föstudagskvöld, þegar símakosning var hafin, birtist fyrir mistök símanúmer annars danspars þegar sýnt var úr dansatriði þeirra Manuelu og Jóns Eyþórs.

Í tilkynningu er áréttað að mistökin hafi verið leiðrétt af umsjónarmönnum þáttarins, sem tilgreint hafi sérstaklega símanúmer Manuelu og Jóns sem kom ekki fram í upprifjuninni. Að auki hafi símanúmerum keppenda verið rennt yfir skjáinn á meðan á skemmtiatriðum stóð. 

„Hins vegar, til að gæta allrar sanngirni hafa Stöð 2 og Rvk studios, framleiðendur þáttanna, tekið þá ákvörðun að bjóða parinu sem var sent heim að ganga aftur til liðs við þáttinn og verða því fimm pör í spennandi úrslitaþætti föstudagskvöldið 31.janúar næstkomandi,“ segir í tilkynningu Stöðvar 2.

Þarna hefði átt að standa 900 9004.

Manuela segir í samtali við Vísi að þau Jón ætli að sjálfsögðu að taka boðinu um að taka þátt í lokaþættinum.

„Þetta var frábær lending og besta lausnin því það var augljóst að þetta var svolítið ósanngjarnt.“

Þá mæti þau hress og upplitsdjörf á sjónvarpsskjám landsmanna næsta föstudagskvöld. „Við ætlum að galdra fram einhvern dásamlegan vínarvals,“ segir Manuela kímin.

Sátt með frammistöðuna

Mistökin voru með hætti að þegar opnað var á símakosninguna og samantekt dansanna sýnd birtist símanúmerið hjá dansparinu Völu Eiríks og Sigurði Má Atlasyni við atriði Manuelu og Jóns. Þeirra símanúmer birtist því ekki en númer Völu og Sigurðar tvisvar. 

Manuela og Jón ræddu málið fyrst í útvarpsþættinum Bakaríinu á Bylgjunni í gærmorgun og kváðust sátt með frammistöðu sína en leiðinlegt væri að detta út við þessar aðstæður.

Inntur eftir því hvort að mistökin kynnu að útskýra af hverju Manuela og Jón hafi lent á botninum sagði Jón að svo kynni að vera. Þau hafi í það minnsta fengið fjölda skilaboða frá fólki sem hafi ætlað að kjósa þau en sent atkvæðið á vitlaust númer.

„En nú efumst við. Kannski, miðað við viðtökurnar og miðað við allt sem við erum búin að fá sent á okkur eftir þetta, finnst okkur þetta gríðarlega leiðinlegt,“ sagði Jón.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×