Körfubolti

LeBron stiga­hæstur gegn gömlu fé­lögunum í níunda sigra Lakers í röð

Anton Ingi Leifsson skrifar
LeBron var öflugur í nótt.
LeBron var öflugur í nótt. vísir/getty

LA Lakers vann sinn níunda leik í röð í nótt er liðið hafði betur gegn Cleveland á heimavelli, 128-99.







Anthony Davis er á meiðslalistanum en það hefur ekki komið að sök í síðustu leikjum liðsins sem hefur leikið við hvurn sinn fingur.

LeBron James átti virkilega góðan leik fyrir Lakers. Hann gerði 31 stig, gaf átta stoðsendingar og tók tvö fráköst en hann lék með Cleveland frá 2003 til 2010





Öll úrslit næturinnar:

New Orleans - Detroit 117-110

Philadelphia - Indiana 95-101

Chicago - Boston 101-113

Oklahoma - Minnesota 117-104

Charlotte - Portland 112-115

Orlando - Sacramento 114-112

Cleveland - Lakers 99-128



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×