Körfubolti

Ní­tján stoð­sendingar frá LeBron er Lakers tapaði með minnsta mun | Mynd­bönd

Anton Ingi Leifsson skrifar
LeBron var öflugur í nótt.
LeBron var öflugur í nótt. vísir/getty

Sigurganga LA Lakers í NBA-körfuboltanum var stöðvuð í nótt er þeir töpuðu með minnsta mun, 119-118, gegn Orlando á heimavelli.

Fyrir leikinn höfðu Lakers unnið níu leiki í röð en þetta var áttunda tap liðsins í deildinni í 41 leik í vetur.

LeBron James var næst stigahæstur með nítján stig hjá Lakers en hann gaf nítján stoðsendingar.







Luka Doncic átti virkilegan góðan leik er Dallas vann sigur á Sacramento á útivelli, 127-123, en hann var með þrefalda tvennu.

Slóveninn gerði 25 stig, tók fimmtán fráköst og gaf sautján stoðsendingar í þriðja sigri Dallas í röð sem er í 2. sæti suðvestur-deildarinnar.





Úrslit næturinnar:

Detroit - Boston 116-113

Brooklyn - Philadelphia 106-117

San Antonio - Miami 100-106

Washington - Chicago 106-115

Indiana - Minnesota 104-99

Toronto - Oklahoma City 130-121

Charlotte - Denver 86-100

Portland - Houston 117-107

Dallas - Sacramento 127-123

Orlando - Lakers 119-118



NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×