Lífið

Ís­land á lista yfir tíu spennandi áfangastaði fyrir árið 2020

Stefán Árni Pálsson skrifar
Iz Harris elskar hreinlega Ísland.
Iz Harris elskar hreinlega Ísland.

Nú þegar nýtt ár er hafið eru margir Íslendingar farnir að velta því fyrir sér hvaða áfangastaður verði fyrir valinu sumarið 2020 eða jafnvel um næstu páska.

YouTube-notandinn Iz Harris, sem hefur 136 þúsund fylgjendur, hefur eytt síðustu þremur árum í það að ferðast og greina frá því að sínum miðli.

Á Þorláksmessu gaf hún síðan frá sér myndband þar sem hún fer yfir tíu áhugaverða áfangastaði fyrir árið 2020.

Harris hefur sjálf heimsótt alla þessa áfangastaði og að sjálfsögðu kemst Ísland inn á þennan lista. Harris heldur einfaldlega ekki vatni yfir Íslandi og mælir eindregið með því að heimsækja eyjuna.

Hér að neðan má sjá þessa tíu áfangastaði en þeirra á meðal eru New York, Hong Kong og Sviss.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×